Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Karri vann EKKI...

Karri vann EKKI... 09 mar 2008 21:04 #6576

Skrifað 09 mar 2008 21:04
Nú er eitt af þeim bestu telemarkfestivalum lokið. Utanbrautarfæri var með besta móti alla helgina og mjög erfitt að halda samhliðasvig keppni í svona frábæru veðri og færi, þar sem allir voru óðir í að skíða í stað þess að keppa. Garðbæingarnir stóðu sig vel í skipulagningunni á keppninni ásamt ræsinum, Valla.

Helstu úrslit eru að: Berglind Aðalsteinsdóttir vann samhliðasvig kvenna og hann Böbbi karlaflokkinn.

Maður mótsins var Ólver Helgos og kona mótsins var Maggý Gólos.

Á næstu dögum kemur smá grein um Telemarkfestival '08.

Við þökkum öllum sem hjálpuðu okkur og ykkur sem mættu.

Cintamani búðin, Fallakofinn, 66N, Janus búðin, Penninn Eymundsson, Síminn og Útivera gáfu vinninga. Þökkum við þeim kærlega fyrir og viljum biðja ykkur að hafa þessar verslanir í huga þegar þið þurfið að kaupa vöru og þjónustu sem þessi fyrirtæki bjóða upp á.

kveðja Bassi og Böbbi og allir hinir.

svar: Kjarri vann EKKI... 09 mar 2008 21:04 #6577

Skrifað 09 mar 2008 21:04
Átti auðvita að vera Kjarri...

svar: Kjarri vann EKKI... 09 mar 2008 22:42 #6578

Skrifað 09 mar 2008 22:42
Ég þakka fyrir mig, mega töff.

HRG.

svar: Kjarri vann EKKI... 10 mar 2008 10:46 #6579

Skrifað 10 mar 2008 10:46
Sem nýliði á þessu móti kom mér spænkt fyrir sjónir að tveir sem búið var að slá út skildu keppa til úrslita!!! :)
En það eru greinilega aðrar reglur í telemarkinu. En hvað um það, ég skemmti mér vel og mæti galvaskur á næsta mót ef ég er á Akureyri.

Takk fyrir mig!
Óli B

svar: Kjarri vann EKKI... 10 mar 2008 13:17 #6580

Skrifað 10 mar 2008 13:17
Já .... það kom skemmtilega á óvart :)
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.30 sek