Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Nokkrar myndir

Nokkrar myndir 09 mar 2008 11:19 #6565

Skrifað 09 mar 2008 11:19
Ég er búinn að setja nokkrar myndir af samhliðasviginu á telemarkfestivalinu á netið. Slóðin er: picasaweb.google.com/jonhroi/TelemarkFestival8Mars2008

svar: Nokkrar myndir 10 mar 2008 14:06 #6566

Skrifað 10 mar 2008 14:06
reiða nunnan þakkar fyrir fagrar myndir!

svar: Skarðsheiðin 10 mar 2008 18:48 #6567

Skrifað 10 mar 2008 18:48
Því minni ís því meira spennandi.

Skarðsheiðin er alltaf fær en það er sólin sem ræður mestu um ísmyndun. Ef hún nær að skína seinnipartin þá byggist upp ís á næturnar.

Ég veðja á að hún sé í sérstaklega góðum aðstæðum núna eins og allt annað vetrarstöff þetta árið.

kv.
Palli

svar: Skarðsheiðin 10 mar 2008 22:40 #6568

Skrifað 10 mar 2008 22:40
Ertu ekki aðeins að fara dálkavillt eða ertu þeim mun meira úti á þekju Palli ( ; ?

Það var reyndar enginn ís fyrir norðan, þeim mun meira af lausamjöll sem var skemmtilegt sko.

Kannski er ég byrjaður að sjá smá ljóstýru í því sem þú birtir hér að ofan.

SS skíði eru spennandi en ís er alls ekki ( :

HahaHRG.

svar: Skarðsheiðin 11 mar 2008 08:26 #6569

Skrifað 11 mar 2008 08:26
Hvernig fór ég að þessu?

Ég get svarið að ég var að láta ljós mitt skína og svara Skabba.

Palli út að aka.

svar: Skarðsheiðin 11 mar 2008 09:29 #6570

Skrifað 11 mar 2008 09:29


Ég setti inn fyrirspurn um skarðsheiðina á föstudaginn síðasta sem hvarf svo e-a hluta vegna skömmu síðar. Það er nokkuð ljóst að Palli hefur stolið henni, en séð svo að sér og skilað á myndaþræði um gönguskíði.

En við ákváðum að geyma Skarðsheiðina í eina viku, leyfa snjónum sem kyngdi niður fyrir helgi að sjatna aðeins.

Skabbi

svar: Þráðabrenglun 11 mar 2008 10:18 #6571

Skrifað 11 mar 2008 10:18
Vefurinn var tekinn niður á föstudaginn og fluttur á öflugari vefþjóna - nokkru síðar en auglýst hafði verið. Þessi óvænti flutningur milli þráða hafa vafalítið gerst í þeirri framkvæmd. Fyrir hönd hýsingaraðilanna, sem mér eru þó óviðkomandi, vil ég biðjast velvirðingar á þessum skemmtilegu mistökum.

með kveðju
Helgi Borg

svar: Þráðabrenglun 11 mar 2008 15:44 #6572

Skrifað 11 mar 2008 15:44
En pínu fyndið og grínið vel meint.

Venga!
HRG.

svar: Þráðabrenglun 11 mar 2008 21:44 #6573

Skrifað 11 mar 2008 21:44
Varðandi ísamagn, þá var Arnar Emils að senda mér ísrapport úr Kaldakinn og ég sé ekki betur á því en ísmagn þar sé afar svipað og það var á festivalinu í fyrra, nema ívið meira af snjó í þetta skiptið.
Það er því ekki rétt hjá Hjalta að það sé enginn ís fyrir norðan, það er bara mjög lítið af ísvænum þilum við þjóðveginn norpur og í Eyjafirðinum.

Annars er kominn bráðabirgða leiðarvísir af Kinninni á www.rds.is/siggi/klifur/topo/pdf/
(er þar í þremur mismunandi upplausnum)

Tilvalið að skella sér norður um páskana, skíða í fjallinu og mylja ís í Kinninni.

Nokkrar myndir 11 mar 2008 23:22 #6574

Skrifað 11 mar 2008 23:22
En eru ekki fleiri sem eiga myndir síðan á Telemarkfestivalinu og hafa sett á netið?
kv.
Bassi

svar: Nokkrar myndir 12 mar 2008 08:33 #6575

Skrifað 12 mar 2008 08:33
ójú. ég á fuuuulllt af myndum en sökum óviðráðanlegra orsaka komast þær ekki á netið fyrr en á morgun...

þið megið bíða spennt eftir þeim því þar gefur að líta ótrúlegustu takta í brautinni.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.37 sek