Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Telemark skinn

Telemark skinn 04 mar 2008 12:35 #6535

Skrifað 04 mar 2008 12:35
Hvað er orðið best í þessum telemark skinnum?

svar: Telemark skinn 04 mar 2008 14:02 #6536

Skrifað 04 mar 2008 14:02
Black diamond framleiða bestu skinn:

www.bdel.com/gear/skins_overview.php

svar: Telemark skinn 04 mar 2008 15:23 #6537

Skrifað 04 mar 2008 15:23
Mér hefur þau fundist virka betur undir AT skíðum ...

..... síðri undir telemark ....

svar: Telemark skinn 04 mar 2008 16:19 #6538

Skrifað 04 mar 2008 16:19
Ég er bara nokkuð hrifinn af G3 skinnunum mínum, hafa dugað vel.

kv. Smári

svar: Telemark skinn 04 mar 2008 19:08 #6539

Skrifað 04 mar 2008 19:08
Eru þetta ekki bara allt hin bestu skinn?

CAMP er líka með flott skinn, ekta mohair að mér skilst. Fæst í Everest.

svar: Telemark skinn 04 mar 2008 20:02 #6540

Skrifað 04 mar 2008 20:02
Ég keypti G3 skinn fyrir nokkrum árum og þau eru þrusufín. Er þetta annars ekki allt sama dótið....bara mismunandi límmiði

svar: Telemark skinn 04 mar 2008 21:32 #6541

Skrifað 04 mar 2008 21:32
Ég fékk mér camp mohair skinn í Everest. Þau voru á góðu verði og þjónustan alger snilld. Þeir fá prik hjá mér fyrir þetta.

svar: Telemark skinn 05 mar 2008 16:13 #6542

Skrifað 05 mar 2008 16:13
G3 hafa virkað vel hjá mér.

Þar áður var ég með 50 mm. skinn úr Skátabúðinni svo BD ég get ekki gefið BD skinnunum einkunn.

Ef það virkar ....

svar: Telemark skinn 06 mar 2008 00:08 #6543

Skrifað 06 mar 2008 00:08
er með gömul mohair úr skátabúðinni (1990) sem virka fínt.. en G3 skinnin eru best, BD skinnin eru jafngóð en renna ekki eins vel áfram og G3 án áburðar (yfirleitt ekki vandamál á íslandi)

Ef þú kaupir BD þá er "skin-saver" plastrúlla sem fer á milli skinnanna sem fylgir með, hentu henni, hún er rusl. plastið fer af henni og festist í líminu, magnað flopp frá jafn vönduðum framleiðanda.

G3 kom reyndar með flopp um árið, ónýtt lím og allt afturkallað og vesen en það virðist vera komið allt í fínasta núna.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.37 sek