Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Skíðatími

Skíðatími 22 feb 2008 08:24 #6467

Skrifað 22 feb 2008 08:24
Bendi mönnum á gott skíðafæri í Bláfjöllum og góða spá næstu daga. Opnuðum í gær eftir smá hláku kast. Fjallið var svo glerjað í gær vera þurfti á broddum við að merkja skíðaleiðir. Seinni partinn gerði svo duglega snjókoma með flottu færi.

Mjög lítinn snjó tók hér upp í hlákunni og sums staðar bætti bara í hvernig sem á því stendur. Kannski er frostmark farið að færast ofar á hitaskalann. A.m.k. hafði verulega bætt í snjó kringum girðingar þegar menn loks sáu til og gátu farið að skoða Fjallið. Snjóbúskapur er því með besta móti.

Kv. Árni Alf.

svar: Skíðatími 22 feb 2008 10:23 #6468

Skrifað 22 feb 2008 10:23
tókum nokkrar frábærar bunur í kóngsgilinu í gær. léttur snjór ofan á ís. gerist varla betra í bláfjöllum!

svar: Skíðatími 23 feb 2008 00:19 #6469

Skrifað 23 feb 2008 00:19
Erfitt en gaman að heyra þetta héðan úr blíðunni, 20 stiga hiti. Bíð spenntur eftir vetri.

Kiwikveðja, Nils....

svar: Skíðatími 23 feb 2008 08:03 #6470

Skrifað 23 feb 2008 08:03
Bláfjöll 23 feb. kl: 8:00.

Lítur út fyrir góðan dag. Utanbrautar er púður ofan á mjög hörðu lagi. Svellfínt. Gönguskíðamenn ættu einnig að nota tækifærið og nota frábæra göngubraut eftir að Bláfjallagangan hefur farið fram (gangan byrjar kl. 13:00. Um er að ræða 10 km. braut. Hin hefðbundna 15 km braut verður einnig til staðar.

Kv. Árni Alf.

svar: Skíðatími 23 feb 2008 18:09 #6471

Skrifað 23 feb 2008 18:09
Bláfjöll 23 feb. kl. 18:00

Dagurinn byrjaði frekar grámyglulega og smá golu. Seinni partinn rofaði til og nú litar kvöldsólin brekkur, heiðar og hraun gullfallega gulum blæ í stafalogni. Flottast af öllu flottu er að fara 10 km. keppnisbrautina í kvöldsólinni.

Kv. Árni Alf.

Fyrrverandi Reykjavíkurmeistari í skíðagöngu (1978).

svar: Skíðatími 23 feb 2008 22:13 #6472

Skrifað 23 feb 2008 22:13
Það má svona til gamans geta að ég keppti fyrir ungtemplarafélagið Hrönn á þessum tíma. Skíðin voru af tegundinni Gresshooppa og úr tré. Keppnin fór fram í Skálafelli en þar er skáli Hrönnunga einmitt staðsettur. Man ekki eftir að hafa sótt stúkufundi neitt sérstaklega stíft. Þetta rifjaðist nú bara upp þegar keppni í skíðagöngu ber á góma.

Kv. Árni Alf.

Fyrrverandi ungtemplari.

svar: Skíðatími 24 feb 2008 10:05 #6473

Skrifað 24 feb 2008 10:05
Bláfjöll 24 feb. kl. 10:00

Fallegur dagur í aðsigi. Mögnuð sólarupprás við Eyjafjallajökul nú áðan. Hér er 6 stiga frost, logn, léttskýjað með örstuttum éljabökkum. Víðast mjúkur snjór sem marrar í. Virkilega gott færi. Mæli enn og aftur með 10 km. gönguskíðabrautinni sem þvælist um gígana við Suðursvæðið.

Kv. Árni Alf.

svar: Skíðatími 24 feb 2008 11:02 #6474

Skrifað 24 feb 2008 11:02
takk fyrir fréttir live úr fjallinu!

svar: Skíðatími 26 feb 2008 15:00 #6475

Skrifað 26 feb 2008 15:00
Bláfjöll 26 feb. kl 15:00

Flott veður og færi.

Kv. Árni Alf.

svar: Skíðatími 28 feb 2008 15:55 #6476

Skrifað 28 feb 2008 15:55
Bláfjöll 28 feb. kl. 16:00

Massað púðurfæri. Gengur á með smáéljum en annars bara sól og blíða. Eitt besta færi vetrarins.

Kv. Árni Alf.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.23 sek