Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Bláfjöll

Bláfjöll 18 jan 2008 13:37 #6161

Skrifað 18 jan 2008 13:37
Já er það ekki æðislegt að vera með skíðasvæði sem loksins sér snjó, en þá vantar starfsmennina?

Himmi

svar: Bláfjöll 18 jan 2008 14:30 #6162

Skrifað 18 jan 2008 14:30
Já það er alveg klárt mál að þetta er verst rekna skíðasvæði í Evrópu þessa dagana. Alltaf sagan með þetta blessaða svæði, það er aldrei hægt að ráða mann með viti til að reka þetta almennilega.

Gærkvöldið var náttúrulega bara rugl,varla hægt að bjóða fólki upp á svona kjánalæti. Mér skildist að það hafi verið 4 starfsmenn á svæðinu!!!! Hressandi

svar: Bláfjöll 18 jan 2008 16:03 #6163

Skrifað 18 jan 2008 16:03
Ja tel mig góðan að hafa mætt kl 1600 og náð nokkrum ferðum áður en allt pakkið kom. Þeir sem mættu kl 1800 hafa örugglega ekki náð mörgum ferðum.

Kv Danni G

svar: Bláfjöll 18 jan 2008 16:37 #6164

Skrifað 18 jan 2008 16:37
Ég gaukaði þeirri hugmynd að nýja framkvæmdastjóranum að ráða kannski eins og nokkra pólverja í vinnu...
Annars líst mér vel á hann þó svo það sé óneitanlega klúður að vera ekki með fólk í vinnu til að halda öllu opnu.

svar: Bláfjöll 18 jan 2008 16:54 #6165

Skrifað 18 jan 2008 16:54
Maður þarf ekkert starfsfólk ef maður býr á Laugarvatni... Gekk á Laugarvatnsfjall, skíðaði niður og konan tók myndir út um eldhúsgluggann.

myndir á www.flickr.com/photos/22925172@N03/sets/72157603745570225/

Smári

svar: Bláfjöll 18 jan 2008 17:13 #6166

Skrifað 18 jan 2008 17:13
Hér hefur mökksnjóað í allan dag. Nýstytt upp, heiðskýrt, logn og Fjallið í einum flottustu aðstæðum sem ég hef séð. Færið er mergjað sérstaklega á í púðrinu á troðnu brautunum. Þó ekki verði opið í kvöld mæli ég með að menn labbi upp og njóti færisins. Hugsanalega hvasst á morgun og því púðrið á bak og burt.

Kv. Árni Alf.

svar: Bláfjöll 18 jan 2008 22:17 #6167

Skrifað 18 jan 2008 22:17
Setning dagsins..."Samt betra að eiga rispuð skíði en skíði sem maður notar ekki vegna hræðslu við að rispa þau "

Fyrsta rispan er alltaf erfiðust en svo venst það....var ekki í einhverju dægurlaginu.....það er vont en það venst,

Frábært að sjá hvað landinn tekur við sér þegar viðrar,

kv.Himmi

svar: Bláfjöll 18 jan 2008 23:23 #6168

Skrifað 18 jan 2008 23:23
engar rispur eftir púðurrispuna sem ég og björk tókum í Kóngsgilinu í kvöld. ef einhver hafi efast um að það sé hægt að lenda í púðri í bláfjöllum þá hefði hann átt að vera á svæðinu. alveg fáránlega flottar aðstæður.

þeir sem stefna utanbrautar þessa helgina ættu að vera vakandi vegna snjóflóðahættu. mikill snjór og nokkur vindur geta verið hættuleg blanda...

svar: Snjóframeiðslu þráhyggja 19 jan 2008 02:16 #6169

Skrifað 19 jan 2008 02:16
Í kvöld var í fjölmiðlum enn eitt viðtalið við einn af forsvarsmönnum skíðasvæðisins í Bláfjöllum þar sem fram kemur að gervisnjór og snjóbyssur eru það sem bjarga eigi svæðinu.



Svo skemmtilega vill til að á sama tíma og viðtalið er sýnt á Stöð 2 þá eru þúsundir eða milljónir rúmmetra af snjó að fjúka af stað í norðanáttinni úr brekkunum eitthvert út á heiði fáum til gagns.

Nú hefði verið betra að ná þessum snjó með snjógirðingum inn í skíðaleiðirnar. Þessir snjóflutningar eru einnig ókeypis.

Af hverju minnast þessir forsvarsmenn aldrei á snjógirðingar?

Kv. Árni Alf

svar: Snjóframeyðsla 19 jan 2008 06:08 #6170

Skrifað 19 jan 2008 06:08
Það sem vantaði kannski inn í þetta hjá mér er að þessi frétt kemur þegar allt er hér á kafi í snjó og menn eiga í vandræðum með hann.

Það tæki allar snjóbyssur landsins mörg ár að framleiða það magn sem er hér er og á ég við það sem eingöngu er í skíðaleiðum.


Þegar ég sá stafsetninguna á þessu þurfti ekki að bæta við L-i heldur setja bara Y - lon inn í þetta. Á miklu betur við.

Kv. Árni Alf.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.23 sek