Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Myndir af Telemarkhelginni

Myndir af Telemarkhelginni 20 mar 2007 11:20 #4992

Skrifað 20 mar 2007 11:20
Hér er hægt að skoða skemmtilegar myndir af Telemarkhelginni.

ibi.smugmug.com/gallery/2602022#137228304

takk Íbí.

kveðja

svar: Myndir af Telemarkhelginni 20 mar 2007 11:35 #4993

Skrifað 20 mar 2007 11:35
Setti nokkrar hráar myndir inn með frétt um helgina á vef Útiveru www.utivera.is.
Öll aðstoð við að nafngreina þá keppendur er vel þegin.
Vinsamlega sendi elínu á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Til stendur að segja frá helginni í stuttu máli og myndum í næsta tbl. og því þætti mér vænt um að fá að sjá góðar myndir hjá þeim sem þær tóku.
Sérstaklega vantar mig myndir úr stökkkeppninni á föstudaginn og svo frá fjallabruninu sem Skúli vann svo eftirmynnilega. Held það hafi einmitt verið Skúli sem sagði við mig klukkan 12.30... "Þetta verður blásið af!" Hann verður því að efast í eitt ár um hvað hefði getað gerst ef...
jgj

svar: Myndir af Telemarkhelginni 20 mar 2007 11:49 #4994

Skrifað 20 mar 2007 11:49
Hér koma nokkrar myndir frá Vinafélagi Íslenskrar náttúru:

www.pbase.com/arnor3/agureyrish2007

Þetta myndasafn inniheldur þó meira af menningarhluta en skíðahluta ferðarinnar.

svar: Myndir af Telemarkhelginni 20 mar 2007 11:57 #4995

Skrifað 20 mar 2007 11:57
Svo var heljarinnar viðtal við Bassa í Vítt og breitt á Rás 1 í gær. Hægt að hlusta á dagskra.ruv.is/streaming/ras1/?file=4328621/3

Kv. Íbí

svar: Myndir af Telemarkhelginni 20 mar 2007 14:33 #4996

Skrifað 20 mar 2007 14:33
Svo eru fleiri myndir að detta inn.
Hér eru skemmtilegar myndir frá Helgu Björtu

www.pbase.com/helgz/telemark

kv
Bassi

svar: Myndir af Telemarkhelginni 20 mar 2007 16:20 #4997

Skrifað 20 mar 2007 16:20
Já, Gauti minn. Það er auðvitað þitt mál ef þú sporðrennir öllu sem lögfræðingar segja þér. Þér til hróss verður hins vegar að viðurkennast að þú varst ótvírætt efnilegastur allra keppanda.

Það kom mér hins vegar meira á óvart að TAT-arararar skyldu guggna á fjallarallinu eftir fjálglegar yfirlýsingar yfir borðum kvöldið áður. Ja, þetta unga fólk sem þekkir ekki annað en gerviefni, fingravettlinga og hverfur svo frá við smá skafrenning ...

Þetta var annars hið besta mót fyrir nokkuð mörg atriði í dómgæslu sem verða látin liggja milli hluta. Maturinn var til sérstakrar fyrirmyndar.

svar: Myndir af Telemarkhelginni 20 mar 2007 17:15 #4998

Skrifað 20 mar 2007 17:15
Það er nú ekki amarlegt að fá svona dóm...

svar: Myndir af Telemarkhelginni 20 mar 2007 20:37 #4999

Skrifað 20 mar 2007 20:37
Iss Tatarar mættu upp í fjall fyrir hádegi við hestaheilsu en voru fljótir að hverfa í bílana þegar fréttist af því að færðin væri að spillast því ekki vildum við að norðmaðurinn yrði veðurtepptur á Íslandi og missti af fluginu sínu.
Tökum ykkur létt að ári!!!!!

svar: Myndir af Telemarkhelginni 20 mar 2007 23:13 #5000

Skrifað 20 mar 2007 23:13
Já ég verð að taka undir það með Skúla að maturinn var ansi fínn og ég min þakka þeim sem hann gerðu ,en annars takk fyrir gott mót og áfram team árbær. . . . .

svar: Myndir af Telemarkhelginni 21 mar 2007 16:54 #5001

Skrifað 21 mar 2007 16:54
Já, það eru víst örlög mín að vera bara efnilegur. Það væri nú strax til bóta ef ég yrði efnalegur!
Þakka sömuleiðis mikið fyrir mig ... skemmtilegt mót í alla staði.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.52 sek