Það er ástæða til að vekja athygli ísalpara á grein Árna Alfreðssonar um snjóleysið í Bjáfjöllum í Mbl. sl. laugardag. Árni bendir á einfaldar leiðir til að halda snjó í brekkum og nýta betur fjárfestingar síðustu ára án þess að kostað sé til stórfé. Eins bendir hann á að þótt skíðasvæðið sé lokað almenningi geti samt verið nægur snjór í Kóngsgili og Suðurgili sem sé þá opið fyrir skíðaæfingar. Þetta er svo sem það sem marga hefur grunað sem hafa horft á ljósin í Bláfjöllum í norðanáttinni í vetur.
Það er kaldhæðnislegt að á sama tíma og allt hafði snjóað í kaf í Bláfjöllum kom frétt úr Bláfjöllum í Mogganum (sl. laugardag)undir yfirskriftinni "Áhyggjur af snjóleysinu”. Þegar farið var á heimasíðu Bláfjalla kom svo í ljós að ein lyfta var opin fyrir almenning, þó þannig að eina alvöru skíðabrekkan var lokuð vegna skíðamóts (jafnvel þótt nýbúið væri að flauta Íslandsmót á skíðum af með miklum lúðrablæstri í fjölmiðlum – það vantaði snjóframleiðslukerfi). Snjór eða ekki snjór - það er tæplega hægt að segja að almenningur sé hvattur til að koma í Bláfjöll þessi síðustu misseri. Langar annars einhvern í Bláfjöll?
Það er einhver undarleg deyfð sem svífur yfir Bláfjallasvæðinu. Var virkilega ekki hægt að opna einhverjar skíðaleiðir í febrúar, þó ekki væri e.t.v. nema nokkrar barnalyftur? Er skíðasvæðið e.t.v. frátekið fyrir æfingar og pöbullinn mætir afgangi? Hvar eru fréttirnar “Snjórinn kominn, allir á skíði!” eftir snjókomu síðustu daga? Hvernig væri einfaldlega að opna svæðið almennilega fyrir almenning og þá meina ég allar lyftur, líkt og hér áður fyrr? Vantar virkilega enn snjó eða er nú aðsóknin sem lætur á sér standa (það vill náttúrulega enginn fara á skíði á alvöru snjó eða hvað)?
Ef Bláfjöll er eins sviðin jörð og stjórnendur Bláfjalla vilja vera af láta virðist eins gott að loka sjoppunni og hætta að selja okkur árskort á vafasömum forsendum. Sjálfur hef ég ákveðið að yfirgefa þennan táradal og er á leiðinni norður eins og aðrir telemarkarar.