Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Lausamjöll

Lausamjöll 28 feb 2007 09:10 #4860

Skrifað 28 feb 2007 09:10
Hér á Akureyri hefur snjóað látlaust í nokkra sólarhringa og nú hefur stytt upp. - Lausamjöll/logndrífa/púður upp í mitti og þá er gaman að leika sér á skíðum!

Kristín

svar: Hardcore snjór 28 feb 2007 14:35 #4861

Skrifað 28 feb 2007 14:35
Iss þetta er nú ekki neitt. Hér í Bláfjöllum höfum við haft látlausa heiðríkju og blíðu undanfarið og hardcore snjó. Gamlir kallar kalla þetta harðfenni eða skara. Svona hardcore snjór krefst hardcore skíðamennsku.

Kveðjur að sunnan, Árni

svar: Hardcore snjór 28 feb 2007 20:09 #4862

Skrifað 28 feb 2007 20:09
Iss.
Nóg af snjó í Danmörku í síðustu viku, samfélagið lamaðist í 2 daga.
Kveðjur frá DK, Halli

svar: Hardcore snjór 01 mar 2007 09:11 #4863

Skrifað 01 mar 2007 09:11
Verð að taka undir orð Kristínar um eðalfærið í Hlíðarfjalli. Í gær dömpaði slatta og utanbrautaraðstæður eru að verða ansi krassandi á nýjan leik. Ekki sakar að hafa sem sverasta planka undir löppunum.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.28 sek