Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Þelamerkurhátíð

Þelamerkurhátíð 20 mar 2006 10:28 #3826

Skrifað 20 mar 2006 10:28
Ég vil þakka Jón Marínó og fél. fyrir frábærlega vel heppnaða hátíð sem að flestu fór fram í anda einkunnarorða Nashyrningsins: Léttleiki, liðleiki, sveigjanleiki. Nýsnævið í fjallinu í gær kom skemmtilega á óvart og setti punktinn yfir i-ið (þetta er tekið fram fyrir bjórbullurnar sem fréttist af í heita pottinum á Ak. og einnig á þjóðvegi 1).

Einna helst er álitamál hvort ekki megi einnig bjóða upp á flatböku með hangikjöti næsta ár, en ef mér skjöpplast ekki á sá réttur uppruna sinn og upphaf á Akureyri.

Við meðlimi TAT-hópsins hef ég þetta eitt að segja: Þið þetta unga fólk, sem aldrei hafið kynnst öðru en plastskóm og karvíng-skíðum, njótið sigursins meðan hann varir ... eitt ár er fljótt að líða.
Kv. SM
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.25 sek