Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: TELEMARKHÓFIÐ á Telemarkhelginni

TELEMARKHÓFIÐ á Telemarkhelginni 15 mar 2006 14:37 #3802

Skrifað 15 mar 2006 14:37
Telemarkhófið - byrjar kl. 20:00 á laugardagskvöldið.

Eftir stífa samningagerð við helstu veitingamenn Akureyrar hefur TAT samið við Vélsmiðjuna um stað fyrir Laugardagskvöldið.

Það verður boðið upp á pizzuveislu frá Greifanum og tilboð verða á barnum til klukkan 23:00.

Verðlaunaafhending
Glens og gaman

Við höfum staðinn út af fyrir okkur til 23 en þá opnar húsið almenningi. Kl 24 byrjar svo hljómsveit að spila.

Herlegheitin kosta 1500 krónur og greiðist við innganginn.

Sjáumst...

TAT
fh
Bassa og Böbba

svar: TELEMARKHÓFIÐ-á-Telemarkhelgin​ni 15 mar 2006 14:48 #3803

Skrifað 15 mar 2006 14:48
Það stefnir í stórhelgi og metþáttöku. Ég vil bara benda telemörkurum á að búningahönnuður Silvíu Nætur er að sjá um "outfittin" á Olgunum í samstarfi við Puma. Megi aðrir því vara sig.
Sjáumst um helgina, Helga Björt
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.26 sek