Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Bullsjóðandi stemming

Bullsjóðandi stemming 10 mar 2005 14:04 #2691

Skrifað 10 mar 2005 14:04
Það er bullsjóðandi stemming fyrir helginni:

Þjalaskrap heyrist úr öllum bílskúrum...
Áburðarstraulykt liggur yfir Árbænum...
Sleipiefni fyrir sundknattleik á þrotum í apótekum bæjarins...
Búið að brenna "Best of Aprés-ski" á disk...

svar: Bullsjóðandi stemming 10 mar 2005 14:39 #2692

Skrifað 10 mar 2005 14:39
Því má við bæta að DJ Greenhorn hafði þó nokkuð að segja um lagaval fyrir Telemark Festival Apres Ski 2005
Jafnvel að lög eins og zwanzig centimeter heyrist um helgina .....

svar: Bullsjóðandi stemming 10 mar 2005 15:10 #2693

Skrifað 10 mar 2005 15:10
Ná má team-Árbær fara að vara sig. Því karateklúbburinn Nashyrningurinn hefur skráð sig til leiks. Ef þeir verða með derring í fjallinu þá verður lumbrað á þeim í sundknattleik. Við þurfum ekkert leynivopn því að Skúli er í okkar liði.

Kv.
Ole

svar: Bullsjóðandi stemming 10 mar 2005 16:17 #2694

Skrifað 10 mar 2005 16:17
Guð minn almáttugur - ég vona að þið ætlið ekki að taka hinn berháttaða og ofbeldisfulla úberþjálfara ykkar með, bjór í annarri og bjór í hinni meðan hann gefur mönnum Glasgow kossa í röðum. Þá má team Árbær sko fela sig til fjalla...

Annars veðja ég á Nashyrninginn í hnúaarmbeygjukeppninni!

Sissi

svar: Bullsjóðandi stemming 14 mar 2005 13:46 #2695

Skrifað 14 mar 2005 13:46
Hvar getur maður nálgast þetta lag, Zwanzig Centimeter, með betri lögum sem heyrst hafa í langa tíð...?
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.31 sek