Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Skipulagning, - fyrirspurn

Skipulagning, - fyrirspurn 03 mar 2005 10:29 #2639

Skrifað 03 mar 2005 10:29
Sælt veri fólkið,
Við, í skipulagsnefnd telemarkhelgarinnar 2005, sitjum sveitt yfir dagskráratriðum hátíðarinnar og gerum ráð fyrir þéttri dagskrá sem verður birt síðar hér á Ísalp-vefnum.

Á síðustu hátíð fullyrti áhyggjufullur faðir að á næsta ári myndi hann koma með dætur sínar tvær á hátíðina og sjá um barnapössun á staðnum á meðan dagskráratriði stæðu yfir. Þetta var Skúli fógeti. Nú er ég að velta því fyrir mér, Skúli, hvort þetta hafi verið orðin tóm eða ætlar þú að standa við þitt? - Hugmyndin er góð og hugsanlega hægt að skipta með sér verkum eða eigum við að gefa Skúla frjálsar hendur með uppbyggilega dagskrá fyrir börnin. Mér dettur í huga "Skíðaskóli Skúla."

Með kveðju,
Kristín
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.25 sek