Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: snjóalög norðan heiða

snjóalög norðan heiða 15 nóv 2004 10:34 #2210

Skrifað 15 nóv 2004 10:34
Hvað segja norðanmenn, eru komnar einhverjar línur sem hægt er að skíða niður???
S

svar: snjóalög norðan heiða 15 nóv 2004 11:38 #2211

Skrifað 15 nóv 2004 11:38
Jú, sælt veri fólkið...

Eftir óheyrilega rigningu á laugardaginn hefur óskaplega miklum snjó kyngt niður á s.l. sólarhring. Hér er allt hvítt yfir að líta og það sem meira er, - það snjóar í logni. Fyrir þá sem ekki vita hvað það þýðir skal bent á eftirfarandi formúlu, sem reyndar hefur verið nefnd Bassagóríasarregla:

snjór + logn = lausamjöll (á engilsaxnesku “powder”)

Þetta er því ekki spurning um “línur sem er hægt að skíða” heldur að axla byrgðar, arka af stað og demba sér síðan niður eða “just ride”.

svar: snjóalög norðan heiða 16 nóv 2004 15:53 #2212

Skrifað 16 nóv 2004 15:53
...með tilheyrandi neistaflugi þegar kantarnir skerast í grjótið! :)
En það er bara hluti af sjarmanum jú.

svar: snjóalög norðan heiða 16 nóv 2004 17:00 #2213

Skrifað 16 nóv 2004 17:00
vil ég þakka öllum þeim sem bænheyrðu snjóguðinn í gærkveldi.....ótrúlegt hvað þessi littlu hvítu korn geta kætt ungs manns hjarta.

Sjáumst í bláfjöllum um helgina,

Gimp

svar: snjóalög norðan heiða 16 nóv 2004 17:06 #2214

Skrifað 16 nóv 2004 17:06
hmm hefði kannski mátt fylgja með að það er 15 cm jafnfallinn snjór á höfuðborgarsvæðinu og eykst jafnt og þétt!!!
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.30 sek