Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Snjóalög fyrir norðan?

Snjóalög fyrir norðan? 29 okt 2004 14:32 #2070

Skrifað 29 okt 2004 14:32
Gaman væri að vita hvort einhver snjór er farin að setjast í fjöll í Eyjafirði og útfjörðum. Er ekki annars alltaf hægt að treysta á að fjallaskíðafært verði í nóvember?
Kv. SM

svar: Snjóalög fyrir norðan? 30 okt 2004 00:14 #2071

Skrifað 30 okt 2004 00:14
...jú, jú ég kippti út gönguskíðunum tvisvar sinnum í vikunni, skíðaði í "nostalgíu" í nágrenni Akureyrar....færið var fínt í braut en stutt niður á grjót (utanbrautar) nema í kvosum og hvilftum sem mikið hafði safnast saman í.

...húsfreyjan á Másstöðum í Skíðadal arkaði upp til fjalla ásamt búkonu úr borginni um s.l. helgi (fimmtudag, föstudag og laugardag) og renndi sér niður hvítar hlíðarnar á bretti og lét vel af færi og snjóalögum...staðhæfði m.a.s. að þessa daga hafði verið "púður".

Allmikill snjór hefur safnast saman á Tröllaskaganum á s.l. vikum, ég spái því að þessi snjór sé "kominn til að vera" þó það megi gera ráð fyrir að snjórinn sem kom í þessari viku á Akureyri og nágrenni taki upp á næstu sólarhringum sé tekið tillit til framtíðarveðurspár.

Annars getur hver og einn reynt að átta sig á hvernig snjóalögum verður háttað í vetur þar sem ég læt hér fylgja nákvæm fyrirmæli um hvernig menn skuli bera sig að:

Þegar spáð er í milta, eru skornir tveir eða þrír skurðir í það, helst blindandi og það síðan hengt upp. ... Miltað hvítnar smám saman þegar það hangir og þornar og eiga þeir hlutar þess sem fyrst hvítna að segja fyrir um snjósömustu kafla vetrarins.

Verði ykkur svo að góðu...
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.26 sek