Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Aðstæður f. Norðan?

Aðstæður f. Norðan? 31 mar 2004 13:42 #1549

Skrifað 31 mar 2004 13:42
Kannski að norðan menn gefi smá comment á aðstæður f. norðan svona til að vita hvort það sé þess virði að skella sér á AK um helgina....

GIMP

svar: Aðstæður f. Norðan? 31 mar 2004 21:44 #1550

Skrifað 31 mar 2004 21:44
Hér hefur verið sumarveður s.l. sólarhring, 11 stiga hiti og skýjað með köflum einsog Trausti Jónsson veðurfræðingur orðar það. Í Hlíðarfjalli er vorfæri, snjór í brautum og varhugavert að skíða utan þeirra. Hinsvegar má gera sér í hugarlund að nægur snjór sé á Vindheimajökli og næsta nágrenni (svona ef menn nenna að brölta utanbrautar).

Hinsvegar er mun meiri snjór á annesjum, s.l. sunnudag var t.d. nægur snjór á skíðasvæðinu á Siglufirði og í nærsveitum. Þá hefur verið opið á Dalvík s.l. daga og þar hefur hitinn ekki verið jafn mikill og á Ak. Auk þess sem Hvalvatnfjörður og nágrenni virðist safna í sig umtalsverðum snjó, þar er mun meiri snjór en á sama tíma í fyrra.

Með kveðju,
Kristín
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.26 sek