Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Vorskíðun

Vorskíðun 02 apr 2012 11:16 #13082

Skrifað 02 apr 2012 11:16
Ég og Árni Þór úr HSSR skelltum okkur í gilið sem gengur upp úr hliðinni á Grafardal undir Hátindi í Esjunni (Veit einhver nafnið á þessu gili? Gilið beint sunnan við Hátind). Nægur snjór í gilinu en hinsvegar töluvert mikið af grjóti sem hafði hrunið með leysingunum og lá ofan á snjónum.
Fyrir utan grjótið var þetta alveg klassa brekka, klárt mál að ég kíki þangað aftur og reyni að vera aðeins á undan leysingunum og grjóthruninu að ári.

Re: Vorskíðun 02 apr 2012 22:28 #13083

Skrifað 02 apr 2012 22:28
Þetta er hrikalega flott leið.

Ég skinnaði á Móskarðahnjúka í dag. Hitt 2 gaura til, Magnús og Víði (? maniggi). Það má nú ekki leysa mjög mikið í viðbót til að þessi láti verulega á sjá, nægur snjór uppi en það er lítið eftir meðfram gilinu niðurfrá.

Færið var hart en ekki ísað með örlitlum salla af nýju hér og þar í lægðum sem gerði gæfumuninn. Bara ansi fínt, merkilegt nokk.

Vorskíðun er málið þessa dagana - go go go.

Sissi

Re: Vorskíðun 03 apr 2012 08:40 #13084

Skrifað 03 apr 2012 08:40
Ég fór í Grafardalin eftir vinnu í gær. Elti förin eftir Otto upp. Þetta gil hefur gengið undir nafninu ufsilon (sem sumir kalla ypsilon). Skíðaði niður hægri línuna. Færið var aðeins of hart efst fyrir mig. Ég get ekki beðið efir að fara þetta aftur í linara færi.


kv. P

Re: Vorskíðun 03 apr 2012 09:43 #13085

Skrifað 03 apr 2012 09:43
Var í sjömanna hóp í Tindfjöllum um helgina í ÍSALP skálanum. Fórum þrír í kvöldmission á föstudagskvöldið á Haka. Komum á toppinn í ljósaskiptunum og svo var skíðað með ennisljósin niður. Leiðinlega hart færi, en slapp alveg til. á Laugardaginn fórum við á Ými í þokkalegu færi, þokan var ansi þykk upp í 1100m en eftir það skánaði útsýnið til muna. Alveg ágætis dagur á fjöllum.


picasaweb.google.com/107849265394061351531/Tindfjoll3031Mars?authuser=0&feat=directlink

SLÓ

Re: Vorskíðun 03 apr 2012 10:52 #13086

Skrifað 03 apr 2012 10:52
Ég fór í norðurhlíð Skálafells á laugardaginn. Það er brekka sem leynir á sér með bröttum stöllum sem eru mjög skemmtilegrir í vorfærinu. Það var hægt að skíða alveg niður í dalbotninn. Ég hef heyrt að sumir sleppi því en það er klárlega einn skemmtilegasti parturinn að mínu mati. Á leiðinni til baka er upplagt að fara upp að mastri og koma niður beint fyrir ofan gamla KR skálann.

Er ufsilonið sama gil og það sem sumir hafa kallað s-laga gilið eða er það innar í Grafardalnum?

Re: Vorskíðun 03 apr 2012 14:01 #13087

Skrifað 03 apr 2012 14:01
Renndi mér suður Sprengisand frá Eyjafirði að Vatnsfelli í síðustu viku með kúnna.

Lítill snjór í Eyjafirði upp að Berglandi en nóg þar fyrir innan. Mikill snjór frá Laugafelli niður í Vonarskarð og að Jökulheimum. Krapi og talsvert vatn við Nýjadal en Hágöngulón vel fært á skíðum að norðanverðu. Tungná er opin ca. 10km f. neðan Jökulheima en lítið í henni.
Tók strikið beint yfir í Vatnsfell frá Tungná á góðum snjó sem hvarf með öllu við Hrauneyjar.
Alls 8 dagar á ferð og 2 veðurdagar.

Semsagt nægur snjór á hálendinu og suður að Fjallabaki en lítið við norðurströndina.

Góðar stundir,

Re: Vorskíðun 03 apr 2012 14:11 #13088

Skrifað 03 apr 2012 14:11
Upp vinstra megin í gilinu og niður til hægri.
ypsilonid.gif

Re: Vorskíðun 07 apr 2012 23:18 #13107

Skrifað 07 apr 2012 23:18
Fullt af snjó í Heklu, kíktum á föstudaginn langa undirritaður, Katrín, Skabbi og Hrönn, en snérum við í ca. 1.050m vegna rigningar, þoku og vinds. Ágætt rennsli niður í bíl.

Slóðinn upp að Litlu Heklu er aðeins fær frekar öflugum bílum. Við vorum á 38" í 6 pundum frá Suðurbjalla en þar þurfti að nota slatta af hestöflum til að komast upp brekkuna úr gilinu. Hún er full af snjó og vel brött en stutt. Þaðan þarf víða að keyra á snjó með hraunkantinum. En þetta verður sjálfsagt mjög fljótt að breytast næstu dagana og vikurinn tekur við allri vætu svo trúlega verður þetta þurrt og fínt um leið og snjórinn er farinn.
Notendur sem þakka:: Kári Jóhann Sævarsson

Re: Vorskíðun 08 apr 2012 11:39 #13108

Skrifað 08 apr 2012 11:39
Renndi inn á Þórsmörk í gær. Merkilega mikill snjór alveg niður á láglendi. Sá reyndar ekki hátt upp vegna þokuslæðings en maður svona gefur sér að rétt þarna ofar sé nægur snjór.

Vegurinn þarna innúr er nýheflaður og þetta er fínasta hraðbraut. Fólksbílafært án gríns enda ekkert í vötnum og verður svo væntanlega fram á sumar.

Þarna er ógrynni af flottum skíðalænum. Skemmtilegastar á vorin/fyrri part sumars ef snjór er mikill. Vesturhlið Útigönguhöfða er dæmi um góða lænu. Hvet menn til að skíða í skóginum.

Kv. Árni Alf.
Notendur sem þakka:: Ingólfur Eldjárn

Re: Vorskíðun 08 apr 2012 13:31 #13109

Skrifað 08 apr 2012 13:31
Ég fór í Ufsilonið í Hátindi í gær. Suddi allt í kring en eins og oft var veðrið vel þolanlegt í gilinu sjálfu. Færið var undurmjúkt og það er enn hægt að skíða alla leið niður að á. Það fer nú samt væntanlega að styttast í þeirri skemmtun. Austari greinin er nánast alveg grjótlaus en sú vestari eflaust óskíðandi.

Re: Vorskíðun 10 apr 2012 17:19 #13116

Skrifað 10 apr 2012 17:19
Hér er smá myndband sem ég tók í norðanverðu Bláfelli á föstudaginn langa.
Þrátt fyrir þoku nánast allstaðar í kring fengum ágætis glugga til að renna okkur í.
Fullt af snjó og mjög gott vorfæri


Re: Vorskíðun 13 apr 2012 10:35 #13120

Skrifað 13 apr 2012 10:35
Fórum í Yfsilonið í gær. Fínt vorfæri og ennþá nóg af snjó. Fórum upp og niður vestari (vinstri) greinina. Smá grjót á kafla en það var ekki til trafala og auðvelt að sviga framhjá.

Nokkrar símamyndir:

plus.google.com/photos/117207878687187865968/albums/5730822127010938961

Re: Vorskíðun 13 apr 2012 13:44 #13122

Skrifað 13 apr 2012 13:44
Vorum þrír á ferðinni örlítið á undan Óla og Bjössa. Gengum upp hrygginn á Hátind og byrjuðum á því að renna okkur beint niður af honum til austurs (niður í dalinn á milli Hátinds og Laufskarða) Það er alger eðalbrekka sem er líklega allt of sjaldan skíðuð. Fullt af fallegum lænum í téðum dal - en þær eru á síðustu metrunum fyrir þetta ár.

Fórum svo aftur upp og niður Yfsilonið - vestari greinina.

Steppo

Re: Vorskíðun 13 apr 2012 14:32 #13123

Skrifað 13 apr 2012 14:32
....áttu við "skiers right"?

Re: Vorskíðun 14 apr 2012 12:48 #13125

Skrifað 14 apr 2012 12:48
Bara verð að komast á fjallaskíði í fjöllum á morgun sunnudag 15. apríl, er að fara á gengjunum hérna! Ef einhver er til í félaga eða vantar félaga endilega hnippið í mig.

kveðja
Ingimundur Stefánss

Re: Vorskíðun 15 apr 2012 10:17 #13130

Skrifað 15 apr 2012 10:17
Þessar gerfihnattamyndir geta gefið ágætar upplýsingar um snjóalög á einstökum fjöllum og aðkomuleiðum:
igg01.gsj.jp/vsidb/image/proto_header.html veljið svo eldfjall úr listanum vinstra megin.

lance-modis.eosdis.nasa.gov/imagery/subsets/?subset=Iceland
á Innrauðu (græn rauðu) myndunum er snjór rauður en ský hvít.
Notendur sem þakka:: Kári Jóhann Sævarsson

Re: Vorskíðun 15 apr 2012 18:11 #13131

Skrifað 15 apr 2012 18:11
Fórum fimm á Syðstu-Súlu í dag. Algjörlega frábært veður og fínt færi. Þurftum að ganga 2km að snjó og síðan bara hamingja eftir það.
Góður dagur á fjöllum.

Re: Vorskíðun 17 apr 2012 12:59 #13136

Skrifað 17 apr 2012 12:59
Skaust á Móskarðshnjúka, um Laufaskörð á Hátind og beint þar til vesturs niður gilið á sunnudaginn, vildi prófa annað en Yfsilonið.

Snjór hefði mátt vera meiri á uppleið, skíðagangan var nú ekki beint samfelld á snjó:) Sá til Stefáns Arnars og félaga skíða niður austanverðan Hátind og hugsaði á niðurleið vestanmegin að ég hefði betur farið þeirra leið.

Það vantaði snjó í gilið mitt á nokkrum stöðum svo stökkva varð fram af lágum börðum og heldur mikið af sprungum að opnast, náði að krækja skíði ofan í einu sinni, þetta var sannarlega síðasti séns. Skíðafærið var hins vegar frábært að öðru leiti, mátulega meyrt, hefði ekki verið kátur í harðfenni þarna með rof í snó í framhaldi af miklum bratta!

Þetta var svona testferð fyrir gamla fjallaskíðabúnaðinn frá 1986, sem stóð sig bara furðanlega vel (skinn svolítið slitin:)). Hvað segið þið, verður ekki bullandi skíðafæri í Súlum, Heklu, Eyjafjalla- og Snæfellsjökli fram í Júní?

Re: Vorskíðun 17 apr 2012 14:14 #13137

Skrifað 17 apr 2012 14:14


Þetta hafa verið við Hrönn og Björk sem þú sást á Hátindi á sunnudaginn, og við sáum þig í Laufskörðum. Löðrandi fínn skottúr, lögðum á bílastæðinu við Móskarðshnjúka og gengum upp gilið austan við Hátind. Þrælfín brekka og feikilegt snjómagn þarna uppi. Skíðafæri helst líklega e-ð áfram í þessum kulda, um að gera að drífa sig.

Nokkar myndir hér

Allez!

Skabbi

Re: Vorskíðun 17 apr 2012 21:39 #13139

Skrifað 17 apr 2012 21:39
Skabbi, það hefur þá skuggi fylgt stelpunum því þrjá sá ég renna sér úr hliðum Hátinds......

Flottar myndir hjá ykkur.

Re: Vorskíðun 18 apr 2012 16:45 #13146

Skrifað 18 apr 2012 16:45
Smá myndband af Fjallabaki frá síðustu helgi. Fyrri hlutinn í þokunni er úr Norðvesturhlíð Strúts en seinni hlutinn er tekinn á Stórkonufelli. Það er fullt af snjó á svæðinu og mikið af flottum skíðaleiðum en það þarf stóra bíla eða vélsleða í aðkomu.

Re: Vorskíðun 19 apr 2012 17:38 #13148

Skrifað 19 apr 2012 17:38
Fórum tveir í Skálafellið á þriðjudaginn. Löbbuðum upp með stólalyftunni uppá topp og renndum okkur niður norðanmeginn.
Frábær brekka þar sem endar í skemmtilegu gili í niðrí Svínadal. Röltum svo aftur uppá topp í brekku sem er nær Svínaskarði og er það svaka flott brekka. Sennilega ein af þeim betri í nágreni borgarinnar.
Fallhæðin í þessum brekkum er um 500m.
SkalafellFjallaskidi.jpg


ScreenShot2012-04-19at17.36.49.png

Re: Vorskíðun 20 apr 2012 08:42 #13150

Skrifað 20 apr 2012 08:42
Við fögnuðum nokkur sumri í austurhvilftinni í Hátindi. Enn fullt af snjó og hægt að skíða niður í dalbotn.

Fyrir áhugafólk um Skálafell þá settum við í loftið heimasíðu um norðurhlíðina um daginn. Þar væri upplagt að koma upp lyftu og lengja skíðatímabilið. Það eru sennilega fáir staðir jafn vænlegir til að stunda utanbrautarskíðun með lyftuívafi og norðurhlíðin sem gamlir skíðamenn kalla, Shangri-La, fyrirheitna landið.

www.opnumskalafell.is/shangri_la

Ef einhverjir hafa áhuga á að leggja verkefninu lið með því að senda inn myndir af brekkunni er netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Re: Vorskíðun 20 apr 2012 12:09 #13152

Skrifað 20 apr 2012 12:09
Jæja loks hafði ég það af að skra mig aftur í felagið eftir marga ára fjarveru .

Fórum hjónin á Heklu í gær í frábæru veðri, Áttum fjallið enginn annar á ferðinni


hekla.JPG



hekla2.JPG

Re: Vorskíðun 20 apr 2012 12:43 #13153

Skrifað 20 apr 2012 12:43
Róbert Lee Tómasson wrote:
Fórum hjónin á Heklu í gær í frábæru veðri, Áttum fjallið enginn annar á ferðinni.


Að ganga á Heklu er góð skemmtun. Hvaða leið fóruð þið að henni? Er orðið bílfært frá Næfurholti upp að Litlu-Heklu?

Re: Vorskíðun 20 apr 2012 20:27 #13155

Skrifað 20 apr 2012 20:27
forum hefðbunda leið inn i domadal, skildum bilnum eftir við skafl rett adur en komið er að rauðskal ( ca 7-800 m)

þetta hefur verið ca 5km að fjallinu, gatum þó gengið á skiðanum eiginlega alla leið,

youtu.be/VNrdo8pMNqw

Re: Vorskíðun 21 apr 2012 21:59 #13159

Skrifað 21 apr 2012 21:59
Það hlýtur nú að hafa minnkað eitthvað snjórinn á leiðinni upp að litlu Heklu á þessum tveimur vikum síðan ég var þar.

Annars fórum við Katrín á Skálafell í dag, reyndum að miða á línuna sem Arnar Gauti fór upp. Skelltum okkur niður 2-300 metrum vestan við mastrið og komum niður alveg við Svínaskarðið. Skárum svo upp hlíðina og beint upp að mastri. Niður suðurhlíðina. Þetta hefur tekið svona 3-3,5 tíma held ég. Nóg eftir af snjó.
katrinskalafell.jpg

Re: Vorskíðun 22 apr 2012 12:49 #13160

Skrifað 22 apr 2012 12:49
Fór á Herðubreið í síðustu viku. Þar var glænýr vindbarinn snjór ofan á hjarni. Ekkert vor á ferðinni þar. Gamla hjarnið var með örþunnu ísskæni nokkrum cm yfir yfirborði hjarnsins. Þessi tenging brotnaði auðveldlega þegar skíðað var upp nýja snjóinn. Þessu fylgdu verulega óþægileg hljóð en líklega var yfirborð hjarnsins undir ísnum það óslétt að snjórinn fór ekki af stað. Í fyrra féll geysistórt flóð efst úr fjallinu og langt útá hraun og var þar á ferð sambærilegur nýr vorsnjór ofan á eldra hjarni. Ég lagði því ekki í að fara upp gilið og snéri við undir klettunum.

Frá uppgöngunni og austur fyrir Töglin eru fjölmargar veruleg feitar 4-6°ísleiðir í klettabeltinu. Ísinn myndast líklega við sólbráð ofan á klettunum síðla vetrar. Þeir sem vilja alvöru barning á vorin eiga þarna góða möguleika á brölti.

Akstursbann er á veginum frá þjóðvegi þó svo að aldrei sé aurbleyta á veginum þar sem hann liggur um frostfrítt efni, þvegna möl jökulsárhlaupa, hraun, foksand og vikra. Bannið á þann rétt á sér að hætta er á að e-h fari að krækja útfyrir skafla og tjarnir og valda spjöllum. Ef menn hinsvegar aka rakleitt yfir skaflana á veginum og ösla tjarninrnar þá skemma menn ekkert með umferð á þessum árstíma.
Frá Töglum er hreinrækt vetrarfæri.
Varð nokkuð undrandi þegar ég var á skíðum inn við við Bræðrafell þegar löggan á Húsavík hringdi og spurði "hvort ég hefði ekið um Herðubreiðarlindir deginum áður, -án undanþágu frá Vegagerðinni"! -Akandi Ferðafélagsmenn í Herðubreiðarlindum höfðu hringt inn lýsingu á bílnum eða bílnúmer.
Fannst þetta frekar lúalegt, sérstaklega í ljósi þess að ég ók yfir allar tjarnir á veginum, gat ekið þrælbrattann hliðarhalla á snjó ofan vatnsborðs og komst algerlega hjá því að aka utanvegar, á meðan ferðafégsmenn kræktu frjálslega fyrir tjarnir.
Mismunandi leiðarval ræðst líklega af því að ég var á óupphækkaðri torfærubifreið en þeir óku upphækkuðum vörubílum sem henta best til flatlendisnota.

Re: Vorskíðun 22 apr 2012 19:44 #13161

Skrifað 22 apr 2012 19:44
Syðstasúla var príma í dag og mikil traffík á fjallinu. Við vorum sjálfsagt átta og hittum fjóra tveggja manna hópa. Reiknið nú.

Re: Vorskíðun 23 apr 2012 22:41 #13168

Skrifað 23 apr 2012 22:41
Episkt eftirmiddegi i Skalafelli, edal adstaedur og brekkan ad nordan skidud nidur i mosa og lyng. Upp a ny og nidur sudur vangann. Heimsoekilegar umraedur hja okkur Helga Hall. Liklega haegt ad skida um tho nokkurn tima enn.

Half surrealiskt ad heyra ylfur og spangolandi sledahunda tharna hlekkjada vid staur...

H

Re: Vorskíðun 24 apr 2012 08:30 #13169

Skrifað 24 apr 2012 08:30
Mitt nýja áhugamál er myndbandagerð.


kv.P

Re: Vorskíðun 24 apr 2012 11:55 #13170

Skrifað 24 apr 2012 11:55
Ég hef horft á þessa línu í Kerhólakambi síðan ég man eftir mér, hélt alltaf að hún endaði í einhverju rugli. Var þetta worth it? Virkar eins og svolítill hliðarhalli þarna efst. Hefur þetta verið farið áður?

Skemmtileg vídeó.

Re: Vorskíðun 27 apr 2012 10:47 #13180

Skrifað 27 apr 2012 10:47
Man eftir að hafa farið þessa brekku fyrir mörgum árum síðan. Það er smá halli í henni en annars var hægt renna sér ansi langt niður.

Við Kjarri fórum tvo túra um síðustu helgi á Högnhöfða og Rauðfell (Bjössi var með okkur þar).
Snilldar aðstæður.

Búinn að púsla saman video fyrir Högnhöfða

Re: Vorskíðun 06 maí 2012 21:18 #13192

Skrifað 06 maí 2012 21:18
Snæfellsjökull tekinn i dag. frabært til að byrja með en svo skall a svarta þoka . full af snjo en ennþá svaka harðfenni, færið ekkert farin að mykjast

Re: Vorskíðun 07 maí 2012 15:24 #13193

Skrifað 07 maí 2012 15:24
Sá nokkra hópa á Eyjafjallajökli í gær. Renndi mér sjálfur niður á Hamragarðaheiði. Þurfi að halda mér uppi á hryggjum, svo þetta var skemmtileg þrautabraut.

Jökullinn sjálfur var harður, en mjúkt þar sem jökli sleppti.

Gaman væri að vita á hvaða leið hinir hóparnir voru.

BO
Attachments:

Re: Vorskíðun 08 maí 2012 09:30 #13205

Skrifað 08 maí 2012 09:30
Var á Eyjafjallajökli á sunnudaginn í 6 manna hóp. Fórum upp Skerin,kíktum á Goðastein, upp á Hámund og niður Seljavallaleiðina. Skíðafærið hreint ekki það skemtilegasta, jökullinn glerharður en töluvert þyngra færi eftir því sem neðar dró. Samt mun skárra en að þramma á skósólunum upp og niður. Hittum einnig franskt par sem fór Skerjaleiðina upp og niður.

www.wikiloc.com/wikiloc/view.do?id=2811152

Re: Vorskíðun 13 maí 2012 18:36 #13229

Skrifað 13 maí 2012 18:36
HÆ HÆ
15 stk af fersku og hressu skíðapakki fór í þyluskíðun á Botnsúlur á miðvikudaginn var.
Færið var frábært og veðrið enn betra. Við flugum frá Svartagili og skíðuðum niður í skálina austanmegin eina ferð og svo restina niður suðurhlíðar syðstusúlu.
Ógleymanlegur dagur í frábærum félagsskap.
Sjáumst á Banff 16-17 maí.

Kveðja Styrmir

p.s hér er krækja á smá video úr túrnum

youtu.be/vWeLd5pBc1Y

Re: Vorskíðun 16 maí 2012 14:42 #13239

Skrifað 16 maí 2012 14:42
Veit einhver hvernig færðin er inn að Heklu þessa dagana. Ég heyrði af hópi sem var þarna sunnudaginn 6. maí. Þá var ekki hægt að keyra að brekkunum út af sköflum í hrauninu. Hefur einhver farið í millitíðinni sem getur gefið nýrri upplýsingar.

Kveðja,

Kári

Re: Vorskíðun 17 maí 2012 19:33 #13242

Skrifað 17 maí 2012 19:33
Fórum á Heklu í dag. Ökum aðeins inn fyrir Rauðskál. Ágætis færi fyrir utan 200 efstu hæðarmetra (Vindbarin ís +nýr snjór).

Re: Vorskíðun 18 maí 2012 10:37 #13245

Skrifað 18 maí 2012 10:37
Við Ragnar Heiðar fórum á Snæfellsjökul í gær, 17. maí.
Keyrðum upp í 400 m þar sem við gátum farið beint á skíðin.
Skemmtilegt færi - ~20cm nýsnævi ofan á harðpökkuðum snjó.
Fínasta veður en mjög blint á köflum.

Re: Vorskíðun 18 maí 2012 10:58 #13246

Skrifað 18 maí 2012 10:58
Við erum kannski ekki þeir frumlegustu en ég fór í þriðja skiptið í vor á Skálafell og tókum norður-suður combóið. Norðurbrekkan stendur fyrir sínu og enn hægt að skíða niður að á, færið sunnanmegin var orðið helvíti leiðinlegt í pistunum, mjög öldótt og fönký.


Re: Vorskíðun 18 maí 2012 12:10 #13248

Skrifað 18 maí 2012 12:10
Við fórum þrjú Bjallana að Heklu á Uppstigningadag. Renndum frekar blint í sjóinn með færðina en eftir festu og mokstur í brekkunni þar sem farið er upp á hraunið úr gilinu er að leiðin að Litlu Heklu orðin Súkkufær upp að snjó. Það er einn langur skafl í hrauninu sem þarf að taka á ferðinni en annars nokkuð greiðfært.

Við lögðum af stað upp fjallið um fimmleytið og lentum í mökksnjókomu. Létum nægja að labba upp á hrygginn og skíðuðum 20 cm nýsnævi beina leið niður í bíl.

Á leiðinni til baka kíktum við á leiðina sem liggur meðfram girðingunni og að Rangárbrúinni. Þar er snjóskafl í gilinu á leiðinni sem við treystum okkur ekki yfir. Einhverjir gætu eflaust þrykkt þarna yfir á öflugri bílum en við snérum við niður í Næfurholt.

Re: Vorskíðun 18 maí 2012 14:51 #13249

Skrifað 18 maí 2012 14:51
Sveinn Friðrik Sveinsson wrote:
Við erum kannski ekki þeir frumlegustu en ég fór í þriðja skiptið í vor á Skálafell og tókum norður-suður combóið. Norðurbrekkan stendur fyrir sínu og enn hægt að skíða niður að á, færið sunnanmegin var orðið helvíti leiðinlegt í pistunum, mjög öldótt og fönký.




Smá video úr sama túr.
Sjáumst á fjöllum.
Kv Styrmir

youtu.be/I60E9hFY7lI
Notendur sem þakka:: Sveinn Friðrik Sveinsson

Re: Vorskíðun 20 maí 2012 21:38 #13253

Skrifað 20 maí 2012 21:38
Snæfellsjökull frá Dagverðará.
Færið var ruglað flott. Nýlega fallin snjór ofan á stífu gömlu lagi og svo vorskíðun þegar neðar tók. Við löbbuðum ca. 500 m. til að komast í snjó en það má keyra nær fyrir lata.

kv. P
Attachments:

Re: Vorskíðun 20 maí 2012 23:10 #13256

Skrifað 20 maí 2012 23:10
Hekla í gær, komum 1987 módeli af Róver á harðpumpuðum 33" upp að Litlu Heklu með einni smáfestu.

Stórskrýtið að skinna, hlóðst hrottalega í skinnin um mitt fjall. Snjórinn hefur lítið sem ekkert minnkað þarna síðan í byrjun apríl, af nógu að taka.

Færið var vindpakkaður nýr snjór ofan á slush, og þetta combó var bara furðu gott. Þetta pakkaðist í stífri austanátt svo það er smá snjóflóðahætta vestan megin í toppahryggnum, ég myndi amk sleppa því að vera að skera brekkurnar þar mikið. (Svona var þetta í gær).

Eitt besta öryggisatriðið þegar hefðbundnum öryggisatriðum sleppir er náttúrulega: Haul ass!

Hljómsveitin GDÁF tók þrjú lög á toppnum, Styrmir söngvari, Keli í tveggja-handatækni lúftgítarsólói, Katrín grúppía sem stalst upp á svið, Lonný á kontrabassa og Rúnar slagverksleikari frá Jamaica

Notendur sem þakka:: Guðmundur Freyr Jónsson

Re: Vorskíðun 21 maí 2012 14:32 #13260

Skrifað 21 maí 2012 14:32
Kíktum á Syðstu-Súlu á laugardaginn.
Flott vorfæri og sólin skein. Náðum að ljúga okkur alla leið niður í bíl á skíðunum en ætli það hafi ekki verið síðasti séns.
Hittum fyrir tvo aðra skíðamenn þannig að samtals vorum við fjórir.
Attachments:

Re: Vorskíðun 22 maí 2012 19:55 #13265

Skrifað 22 maí 2012 19:55
Karl Ingólfsson wrote:

Akstursbann er á veginum frá þjóðvegi þó svo að aldrei sé aurbleyta á veginum þar sem hann liggur um frostfrítt efni, þvegna möl jökulsárhlaupa, hraun, foksand og vikra. Bannið á þann rétt á sér að hætta er á að e-h fari að krækja útfyrir skafla og tjarnir og valda spjöllum. Ef menn hinsvegar aka rakleitt yfir skaflana á veginum og ösla tjarninrnar þá skemma menn ekkert með umferð á þessum árstíma.
Frá Töglum er hreinrækt vetrarfæri.
Varð nokkuð undrandi þegar ég var á skíðum inn við við Bræðrafell þegar löggan á Húsavík hringdi og spurði "hvort ég hefði ekið um Herðubreiðarlindir deginum áður, -án undanþágu frá Vegagerðinni"! -Akandi Ferðafélagsmenn í Herðubreiðarlindum höfðu hringt inn lýsingu á bílnum eða bílnúmer.
Fannst þetta frekar lúalegt, sérstaklega í ljósi þess að ég ók yfir allar tjarnir á veginum, gat ekið þrælbrattann hliðarhalla á snjó ofan vatnsborðs og komst algerlega hjá því að aka utanvegar, á meðan ferðafégsmenn kræktu frjálslega fyrir tjarnir.
Mismunandi leiðarval ræðst líklega af því að ég var á óupphækkaðri torfærubifreið en þeir óku upphækkuðum vörubílum sem henta best til flatlendisnota.


Tengist þetta?

ruv.is/sarpurinn/frettir/22052012/utanvegaakstur-i-herdubreidarlindum

Re: Vorskíðun 22 maí 2012 22:47 #13267

Skrifað 22 maí 2012 22:47
Þessar myndir tók Ómar Ragnarsson, viku áður en ég var á ferðinni á sumardaginn fyrsta í frosti. Hann fylgdi eftir hóp af jarðvísindamönnum og starfsmönnum þjóðgarðsins sem óku í Öskju.
sjá omarragnarsson.blog.is/blog/omarragnarsson/entry/1240465/

Ég var á ólestuðum bíl sem þolir mikinn hliðarhalla og gat ekið eftir hengubrún fyrir ofan sk Bráðabirgðatjörn þar sem þeir áðurnefndu og FFA höfðu farið útfyrir nokkur hundruð metra leið á auðu landi (en þó aurbleytufríu) en hengjan var ófær fyrir lestaða og upphækkað vörubíla með kerrur.
Þar sem ég þekki leiðina þá ók ég einfaldlega efti veginum yfir aðrar tjarnir þar sem ég vissi að botninn var traustur. Minn akstur var þvi "zero impact á 6 pundum frá Hrossaborg". Það er óþarfi að hlífa gömlum jeppum en ærin ástæða til að halda sig á veginum.
Það fer að verða tímabært að fara aftur þegar nýi snjórinn er búinn að hitna vel og frjósa aftur...

Re: Vorskíðun 23 maí 2012 11:12 #13268

Skrifað 23 maí 2012 11:12
Fórum 11 vaskir menn um borð í Eikarbátinn Drauminn á Dalvík á uppstigningadag og lögðum yfir fjörðin og tókum land að Látrum þar sem var haldið til í 3 daga. Þvílík bongó blíða alla dagana (sem kom ekki á óvart enda flest allir ferðalangar að norðan)og hellingur af snjó og færið eins og best verður á kosið. Þó voru 2 veik snjóalög í skuggahlíðum fjalla svo þeim brekkum var hlíft að mestu í þetta skiptið.

Ekkert slóðaspól eða brölt á 6 pundum þarna, bara vélbátur á sléttum haffletinum ásamt nokkrum höfrungum :)

Video væntanlegt.

Steinþór Tr
Attachments:

Re: Vorskíðun 23 maí 2012 22:39 #13269

Skrifað 23 maí 2012 22:39
Fyrir þá sem fá aldrei leið á mér og mínu monti þá er hér myndband.

kv. P
Notendur sem þakka:: Sveinn Friðrik Sveinsson

Re: Vorskíðun 29 maí 2012 08:43 #13274

Skrifað 29 maí 2012 08:43
Steinþór Traustason wrote:


Video væntanlegt.

Steinþór Tr


Sjá hér:
vimeo.com/42899152

Re: Vorskíðun 29 maí 2012 08:56 #13275

Skrifað 29 maí 2012 08:56
TJl.jpg

472242_3673418648219_322993348_o.jpg

Við Björn Júl (stóri bróðir Tomma Júl) skelltum okkur á Herðubreið í gær. Frábært færi en frauðið var komið á síðasta söludag og dugar að hámarki 2-3 daga í vibót í þeirri ofurblíðu sem spáð er.
Þurftum að taka uþb 100 hæðarmetra skíðalausir.
Allir vegir á svæðinu eru rykþurrir en áfram er akstursbann í gildi.
(Rúllugjaldið fyrir að aka lokaða vegi er hinsvegar lægra en að vera gripinn á 96 Km/klst í Húnavatnssýslu...)
Langafönn lafir e-h fram eftir júní.
Meðfylgjandi er mynd úr sparibrekkunni og önnur af manninum og skíðunum sem fyrst fóru sömu leið fyrir tæpum 30 árum
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 1.23 sek