Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Utanbrautarskíðun?

Utanbrautarskíðun? 29 des 2011 16:35 #12602

Skrifað 29 des 2011 16:35
Hvað segja utanbrautarkonur og menn? Fannfergi síðustu daga og vikna hlýtur að hafa dregið fólk út að leika sér og annað eins á leiðinni.

Hvað er búið að gerast og hvert er stefnan sett? Er snjórinn bara að setjast á flatlendið eða er eitthvað spennandi að gerast á fjöllum? Er undirlagið komið?

Væri kannski ráð að dusta rykið af utanbrautarbandalaginu og stefna á sameiginlega ferð eitthvert?

Til upplýsinga eru nokkrir Frakkar, vanir fjallaskíðamenn í ölpunum, að leita að félagsskap í vetur, ef einhverjir vilja leika við þá þá endilega láta vita af sér hér á síðunni.

Re: Utanbrautarskíðun? 30 des 2011 16:42 #12604

Skrifað 30 des 2011 16:42
Hæ. Veit ekki hvernig staðan er fyrir sunnan en hérna í Skagafirði hefur snjóað talsvert og vindurinn verkað snjóinn. Setti af stað nokkra fleka í dag þegar ég var að leika mér utanbrautar í Tindastól. Lýst vel á að dusta rykið af utanbrautarbandalaginu og vona að fólk dusti líka rykið af snjóflóðamálum/björgun og fyrstu hjálp... Live to ride another day ;) Góða skemmtun !
Kv. Öddi

Re: Utanbrautarskíðun? 01 jan 2012 23:10 #12611

Skrifað 01 jan 2012 23:10
Hæhæ og Gleðilegt nýtt ár.

já klárlega kominn tími til að kalla saman utanbrautarbandalagið!

Ég fór í Bláfjöll í dag og þar var frábært færi og hægt að skíða útum allt, en því miður var skyggni lítið. Mæli allavega með að fólk kíki þangað í vikunni og kannski hægt að plana næstu ferð í stólnum á leiðinni upp!

kv. Björk

Re: Utanbrautarskíðun? 02 jan 2012 23:04 #12616

Skrifað 02 jan 2012 23:04
Sæl öll og til hamingju með nýja árið, sem byrjar fantavel.

Geir Gunnars og undirritaður áttum saman rómantíska stund í fögru tunglskininu á Móskarðshnúkum í kvöld. Fullt af snjó, klassískt Móskarðshnúkafæri, hart og laust til skiptis, þó ekki brotaskari.
Eins gott að nota snjóinn meðan hann er.

Kv Tommi

Re: Utanbrautarskíðun? 04 jan 2012 15:51 #12625

Skrifað 04 jan 2012 15:51

Ég er að byrja mína fjallaskíðamennsku, langar að fara á skíði í Móskarðshnúkum. Hvert keyrir maður og hvar er best að byrja gönguna á fjallið.
kv.
Ottó
840 3047

Re: Utanbrautarskíðun? 04 jan 2012 16:31 #12626

Skrifað 04 jan 2012 16:31
Ottó Leifsson wrote:

Ég er að byrja mína fjallaskíðamennsku, langar að fara á skíði í Móskarðshnúkum. Hvert keyrir maður og hvar er best að byrja gönguna á fjallið.
kv.
Ottó
840 3047

ja.is/kort/#q=hrafnh%C3%B3lar&x=375575&y=414870&z=8
Oft má aka inn að sumarhúsunum. Restin er beint af augum

Re: Utanbrautarskíðun? 04 jan 2012 19:02 #12628

Skrifað 04 jan 2012 19:02
Var að koma úr Skálafellinu. Þó um skíðasvæði sé að ræða þá er ekkert troðið þarna. Þetta telst því utanbrautar. Þarna er allt sléttfullt af snjó og fínt færi. Gilin alveg mögnuð.

Þarna var hæglætisveður meðan brjálað veður er í Bláfjöllum og lokað. Svona er þetta bara í austan átt. Ef svæðið væri opið væru þarna vafalítið þúsundir manna. Ekki hægt að segja að svæðið sé vel nýtt.

Kv. Árni Alf.
Notendur sem þakka:: Kári Jóhann Sævarsson

Re: Utanbrautarskíðun? 10 jan 2012 14:53 #12663

Skrifað 10 jan 2012 14:53
Nokkir unnendur Skálafells hafa komið á fót Facebook-síðu til að sýna stuðning við að svæðið verði opnað í einhverri mynd í vetur. Er ekki sjálfsagt að gera like á það?

www.facebook.com/pages/Opnum-Sk%C3%A1lafell/347441925266250

Re: Utanbrautarskíðun? 11 jan 2012 13:06 #12666

Skrifað 11 jan 2012 13:06
Hef skinnað þarna upp nokkrum sinnum, oft gott færi en erfitt að komast uppeftir þessum slóða.

Furðulegt að loka skálafelli þegar austan átt er ríkjandi vindátt á sv-horninu, var ekki eitthvað íþróttafélag búið að lýsa yfir áhuga að opna skálafell?
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.35 sek