Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Viðskiptafréttir Ísalp: Amer sports kaupir Nikita

Viðskiptafréttir Ísalp: Amer sports kaupir Nikita 18 des 2011 23:45 #12541

Skrifað 18 des 2011 23:45
Amer sports, sem á meðal annars merki sem allir elska á borð við Arc'teryx og Suunto (og síðan Salomon og Atom fyrir þá sem renna sér á tveimur spýtum) er búið að kaupa hið íslenzka Nikita Clothing sem hefur framleitt götu- og brettafatnað fyrir stelpur, smá af strákadóti (Atikin) og stakk sér inn í snjóbrettasölu einnig síðasta vetur.

Fyrir þá halda að Nikita sé bara gelgjubúð á Laugavegi veltir fyrirtækið vel yfir milljarði á ári, er með 40 manns í vinnu og selur föt í 1500 verslunum í yfir 30 löndum.

Það verður spennandi að sjá þau gera með svona sterkan bakhjarl.

Re: Viðskiptafréttir Ísalp: Amer sports kaupir Nikita 19 des 2011 09:59 #12542

Skrifað 19 des 2011 09:59
business.transworld.net/80412/features/amer-sports-acquires-nikita/

Virðist vera smá trend í þessum "jaðarsport" bransa að svona fjárfestingarfélög kaupi nú vaxandi fyrirtæki.

Samanber 5.10 fréttina nýlega (Adi Dassler), BD og Gregory packs (Clarus) og fleiri,

kv.Himmi
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.28 sek