Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Skíðaaðstæður

Skíðaaðstæður 11 des 2011 23:36 #12439

Skrifað 11 des 2011 23:36
Einhver lent í góðum aðstæðum til skíðaiðkunnar, væri gaman að fá fréttir af aðstæðum.

Er farið að huga að staðsettningu jólaskíðunar um næstu helgi?

Smári

Re: Skíðaaðstæður 12 des 2011 22:25 #12465

Skrifað 12 des 2011 22:25
Er kominn nægur snjór í botnssúlur?

Re: Skíðaaðstæður 14 des 2011 10:15 #12482

Skrifað 14 des 2011 10:15
Nákvæmlega, er ekki kominn fín leikföl í Botnssúlur?

Botnssúlur er tilvalið fjallaskíðaland sem hefur þann FRÁBÆRA kost að við (Ísalparar) eigum skála þar uppfrá.

Stutt frá Rvk + skáli + fjallalandslag sem hentar vel til rennslis og klifurs + vetur = GEBBAÐ STUÐ!
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re: Skíðaaðstæður 14 des 2011 11:52 #12485

Skrifað 14 des 2011 11:52
Er eiginlega viss um að þarna sé varla skíðafæri. Nema einhverjar örstuttar lænur. Það er andskotans engin skíðasnjór almennt í fjöllum á SV horninu. Hef verið með kíkinn á Botnsúlunum og á að líta er þetta hálf bert. Vona ég hafi rangt fyrir mér.

Kv. Árni Alf.

Re: Skíðaaðstæður 14 des 2011 13:10 #12487

Skrifað 14 des 2011 13:10
Hefur einhver farið nýlega á Heklu?

Re: Skíðaaðstæður 15 des 2011 13:16 #12499

Skrifað 15 des 2011 13:16
Heil og sæl.
Gaman að sjá hér þráð tileinkuðum skíðaaðstæðum. Síðustu helgi fórum við yst Snæfellsnes. Þar var mikill nýfallinn snjór en ekkert undirlag svo 60 cm púður ofan á grjóti var ekki sérlega spennandi þegar á reyndi. Vegurinn upp að jökli var ekki fær nema 38"+ bílum. Enginn snjór kominn í Skarðsheiðina. Spurning með Eyjafjallajökul upp frá Seljavöllum?
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.34 sek