Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Herðubreið

Herðubreið 05 jún 2011 10:07 #11912

Skrifað 05 jún 2011 10:07
Nú er vegurinn að uppgöngunni á Herðubreið orðinn snjólaus en jafnframt er fínn snjór á fjallinu, alveg niður að flatlendi.
Kjöraðstæður til að skíða þessa sparibrekku.
Það virðast samantekin ráð að banna akstur um vegina, þrátt fyrir að þeir séu orðnir rykþurrir og gerðir úr frostfríu efni og þar sé aldrei aurbleyta.....
Helvíti hart að bannað sé að fara Þurran ÞjóðvegÞjóðarfjalli í Þjóðgarði þegar færið er best.

Það leit einnig vel út með skíðafæri í Öskju og Kverkfjöllum. Fjöllin eru alhvít en hraunin og vegurinn rykþurr. Sennilega bætir í snjóinn í fjöllunum í vikunni en ólíklegt að snjói neðan 600m

Sést þokkalega á þessari mynd frá í gær:
rapidfire.sci.gsfc.nasa.gov/subsets/index2.php?project=firms&subset=Iceland.2011155.terra.721.250m

Spurning hvort vegagerðarmaðurinn sem gaf út þetta kort hafi verið að jappla á sveppum af e-h umferðareyjunni við Sæbrautina.. www.vegagerdin.is/media/umferd-og-faerd/Halendi.pdf
En kanski er þetta hluti af opinberri velferð að forða mönnum frá að skrölta á rykþurrum þvottabrettum í Ódáðahrauni í júní....

Re: Herðubreið 06 jún 2011 12:54 #11915

Skrifað 06 jún 2011 12:54
Hvað með ösku?
Sleppur maður við slík leiðindi á Herðubreið?

Re: Herðubreið 06 jún 2011 23:35 #11918

Skrifað 06 jún 2011 23:35
Ég veit ekki um öskuna þar sem töluvert hefur snjóað eftir gos.
Það var tam nær ekkert öskufall í Mývatnssveit

Re: Herðubreið 06 jún 2011 23:52 #11919

Skrifað 06 jún 2011 23:52
Veit nokkur hvenær vegurinn verður hugsanlega opnaður?

Smári

Re: Herðubreið 07 jún 2011 00:08 #11920

Skrifað 07 jún 2011 00:08

Re: Herðubreið 07 jún 2011 00:38 #11921

Skrifað 07 jún 2011 00:38
Yfirleitt er orðið vel fært í Herðubreiðarlindir í mai. Leiðin er alfarið á frostfríu efni og því aldrei aurbleyta eða hætta á vegarskemmdum.
Vegurinn er töluvert niðurgrafinn sitt hvoru megin við Tumba og þar sitja skaflar stundum fram í júní (eru farnir núna).
Lokun vegarins um Herðubreiðarlindir er því ekki til að koma í veg fyrir drulluakstur og í því ljósi engin ástæða til að virða lokanir. Hinsvegar er lokuninn til að koma í veg fyrir að e-h sauðir aki utanvegar til að forðast skafla og þó fyrst og fremst til að styggja ekki heiðagæsarvarp í Herðubreiðarlindum. Það er hinsvegar hægt að aka að Herðubreið frá Möðrudal án þess að styggja þessa bleikfættu vargfugla.
Þankagangur Vegagerðarinnar er að setja akstursbann á allann veginn þangað til þeir dratthalast til að ryðja snjóinn af veginum í Öskjuop.

Samtök Útivistarfélaga SAMÚT eru að vinna að því að fá þessum umferðartakmörkunum breytt í átt að almennri skynsemi.

Re: Herðubreið 09 jún 2011 09:02 #11924

Skrifað 09 jún 2011 09:02
Annars er svo mikið vor hérna í Reykjavík að í gærkvöldi sýndist mér vera eitthvað af nýjum ís í Ísþilinu (leið #41)og það skóf fram af Virkinu (séð frá horni því er við Þverfell er kennt).

Er þetta spurning um að fara að dusta rykið af ísklifurdótinu og búa sig undir gott skíðasumar?

Re: Herðubreið 09 jún 2011 15:26 #11926

Skrifað 09 jún 2011 15:26
Sissi, eigum við ekki bara að athuga hvort Þilið nái ekki niður?
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Herðubreið 09 jún 2011 15:42 #11927

Skrifað 09 jún 2011 15:42
Er það ekki alltof létt fyrir okkur?

Re: Herðubreið 09 jún 2011 18:07 #11929

Skrifað 09 jún 2011 18:07
Ekki þegar ég er í bláa beltinu sem þú heldur svo mikið uppá
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Herðubreið 22 jún 2011 23:19 #11968

Skrifað 22 jún 2011 23:19
Nægur snjór á Herðubreið. Nýr snjór yfir allri ösku en nýi snjórinn helvíti gljúpur og betra að hafa sæmilegar kringlur á stöfunum. Nýlegt snjóflóð sem fór yfir veginn að uppgöngunni. Fínn skíðasnjór í Öskju og Löngufönn.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.31 sek