Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Hekla

Hekla 18 apr 2011 16:28 #11733

Skrifað 18 apr 2011 16:28
Hefur einhver farið á Heklu nýlega? Má ekki teljast líklegt að leiðin upp úr Næfurholti og um Bjallana að Litlu-Heklu sé torfær út af snjó.

Re: Hekla 19 apr 2011 12:24 #11739

Skrifað 19 apr 2011 12:24
Á þessum tíma er betra að fara yfir efstu brúna á Rangá og aka upp með girðingunn sem liggur beint að Suðurbjöllum. Þetta er drullufrí leið.
Afleggjarinn að efri brúinni er á móti afleggjaranum að Þjófafossi, rétt sunnan við aðal vikurnámurnar.
Leiðin og brúin er sæmilega greinileg á ja.is

Re: Hekla 20 apr 2011 19:43 #11748

Skrifað 20 apr 2011 19:43
Kalli ertu að meina brúnna sem eitt af þessum vikurtökufélögum settu rétt fyrir neðan námurnar sem jarðefnaiðnaður er með. Áinn liggur þarna frekar þröngt.

Re: Hekla 23 apr 2011 20:21 #11756

Skrifað 23 apr 2011 20:21
Sæll Bárður, -þessi brú er gömul, finnst líklegra að sveitavargurinn hafi staðið í brúargerðinni en brúin er nálægt suðurmörkum vikurnámsins,

Hún er ágætlega greinanleg á kortavef ja.is

Re: Hekla 04 maí 2011 14:11 #11795

Skrifað 04 maí 2011 14:11
Ég var dregin upp á Heklu núna á mánudaginn.
Það þarf aðeins meira en sliddujeppa þessa dagana.

picasaweb.google.com/lh/photo/7_zu6LhM8h2_mKftx0MX2g?feat=directlink

kv.
P

Re: Hekla 05 maí 2011 10:45 #11797

Skrifað 05 maí 2011 10:45
Páll Sveinsson wrote:
Ég var dregin upp á Heklu núna á mánudaginn.
Það þarf aðeins meira en sliddujeppa þessa dagana.

picasaweb.google.com/lh/photo/7_zu6LhM8h2_mKftx0MX2g?feat=directlink

kv.
P


Góð ákvörðun á fallegum degi! Hvað leið völduð þið upp úr og var farið e-ð að blotna í slóðum? Gaman væri að fá gps punkt þar sem þið skilduð bílinn eftir til að átta sig betur á snælínunni.

kv.

Björn
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.21 sek