Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Skíðafæri við höfuðborgina?

Skíðafæri við höfuðborgina? 20 mar 2011 08:55 #11630

Skrifað 20 mar 2011 08:55
Halló

Einhverjar fréttir af snjóaðstæðum utanbrautar hér á nágrenninu?

kv.
Softarinn
picasaweb.google.com/ivarfinn

Re: Skíðafæri við höfuðborgina? 20 mar 2011 09:39 #11631

Skrifað 20 mar 2011 09:39
Sæll Ívar

Það var vel hægt að skíða utanbrautar í Bláfjöllum í gær. Fínn snjór en yfirleitt mjög stutt niður á hart. Það var líðið af fólki í gær en fjallið samt mikið skorið.

Mig grunar að suðurhlíðin á Móskarðshnjúkum sé í góð lagi. Það var líka nokkuð gott ástand í Skálafelli um síðustu helgi.

Er á leiðinni í Bláfjöll á eftir en væri til í að skíða einhverjar brekkur utan skíðasvæðann ef einhver vill skinna með mér.

Kveðja,
Arnar (s. 695 1789)

Re: Skíðafæri við höfuðborgina? 20 mar 2011 11:40 #11632

Skrifað 20 mar 2011 11:40
Við enduðum nokkur á Skálafelli í gær eftir að hafa horfið frá þeirri hugmynd að skíða í Botnsúlum sökum hávaðaroks og skafrennings. Í Skálafelli var reyndar líka mjög hvasst en það er öllu viðráðanlegra verkefni í leiðindaveðri.

Færið var betra en við bjuggumst við. Vindpakkaði snjórinn var ekki orðinn harður þar sem hann var bara að myndast, og inn á milli voru skallablettir sem voru ekki eins harðir og við mátti búast. Sumsé ágætis rennsli en aðallega rosalega hressandi útivera í rosa roki.
Á heimleið sáum við hvernig vindurinn steyptist niður Mosskarðshnúka og eystri hluta Esju. Reyndar sáum við ekki fjöllin þar sem þau hurfu í rosalegt skafrenningsskýi.

Adieu.
Sveinborg

Re: Skíðafæri við höfuðborgina? 20 mar 2011 15:07 #11633

Skrifað 20 mar 2011 15:07
Búið að snjóa mjög mikið í dag hér í Bláfjöllum. Haugur af nýsnævi ofan á hjarnlagi og utanbrautarfæri gott en skyggni hins vegar ekkert.

Kv. Árni Alf.

Re: Skíðafæri við höfuðborgina? 20 mar 2011 22:43 #11636

Skrifað 20 mar 2011 22:43
Árni þú verður að taka þá í smá námskeið þarna uppfrá í lýsingum á aðstæðum. Ég held að þessu hvítu lygar sem menn eru að stunda þessa dagana skemmi klárlega fyrir til lengri tíma. "Frábært skíðafæri" eða eitthvað slíkt er notað á hverjum degi, maður brennir sig á því nokkrum sinnum og hættir svo bara að trúa því og nennir ekki að kíkja ef maður er ekki viss, eins og í dag.

Fyrir nokkrum árum notuðu skíðasvæðin lýsingar á borð við púður, troðinn þurr snjór, unnið harðfenni ogsfrv, ég held að góðar lýsingar séu mun snjallari til langs tíma.

Annars bara keep on rocking, sísonið ætti nú að endast soldið í viðbót, þetta virðist vera fínt base sem girðingarnar þínar eru búnar að taka niður :)

Sissi

Re: Skíðafæri við höfuðborgina? 21 mar 2011 09:58 #11637

Skrifað 21 mar 2011 09:58
Innilega sammála þér Sissi. Lýsingar af færi og veðri eru stundum í litlu samræmi við raunveruleikann. Hvað er annars frábært færi? Glerhart eins og margir góðir svigskíða og keppnismenn vilja hafa það eða er það mjúkt nýsnævi eða púður eins aðrir vilja?

Fyrir utan að nota standard lýsingar þá þarf að uppfæra bæði veður og færi mun oftar. Endilega moka inn kvörtunum til skíðasvæðanna. Dropinn holar steininn.

Ég man hér í gamla daga þegar tölvunnar naut ekki við þá var þetta meir og minna tóm lygi á símsvaranum. Með tilkomu tölvunnar þá er þó myndavél sem er eilítið hlutlausari. Hún er reyndar svo léleg í Bláfjöllum að erfitt er að lesa í veður.

Kv. Árni Alf.

Re: Skíðafæri við höfuðborgina? 03 apr 2011 12:20 #11706

Skrifað 03 apr 2011 12:20
Bláfjöll Sunnudagur 3. apríl

Þriðji dagurinn og líklega sá besti í vetur hvað utanbrautarfæri snertir. Hef reyndar haft Fjallið út af fyrir mig í morgun því Kóngurinn opnar ekki fyrr en kl. 14 fyrir almenning (vegna landsmóts á skíðum).

Það er hins vegar alveg þess virði að mæta þá. Almenningur eða svonefndur pöpull hefur lítið látið sjá sig þessa bestu daga vetrarins.

Skíðagöngubrautirnar eru þó líklega það sem toppa allt. Hægt að velja úr snilldarvel lögðum brautum um Strompana en svo nefnast gígarnir við skíðasvæðið. Mesti snjór og besta færi og veður í manna minnum.

Kv. Árni Alf.

Re: Skíðafæri við höfuðborgina? 03 apr 2011 19:05 #11707

Skrifað 03 apr 2011 19:05
Takk fyrir þetta Árni. Í dag stóð á síðu skíðasvæðanna "Það er búið að vera frost í alla nótt þannig að færið er líka mjög gott." Sagði mér lítið en ég dreif mig um leið og ég sá texta frá manni sem er eitthvað að marka!

Frábær dagur, toppahengjan og brekkan var góð, sem betur fer fyrir mig var lokað þar þangað til maður mætti á svæðið. Smellti líka einu fari niður skálina í Fram og einu niður diskalyftabrekkuna, hún er í epískum aðstæðum.

Í öðrum fréttum þá voru einhverjir útlenskir skíða- og brettamenn sem skelltu sér niður austurfésið á Skessuhorni í gær í ágætis aðstæðum, þetta er svona frekar mikið respect og enn meira þegar maður hugsar til þess að það hefðu getað verið allskonar verri aðstæður þarna uppi.

Mig minnir að ég hafi heyrt að einhver hafi skíðað rásina sem er svolítið innarlega þarna austan megin, en þeir byrjuðu bara á að fara niður hrygginn og tóku svo rásina sem er fremst. Það var flott að fylgjast með þessu.

Sissi

Re: Skíðafæri við höfuðborgina? 04 apr 2011 09:21 #11712

Skrifað 04 apr 2011 09:21
Veit ekki hvort Eyjafjallajökull flokkast sem nágreni höfuðborgarinnar. En allavega fórum við nokkrir á skíði þar á sunnudag.

Frábært færi, tonn af snjó. Fáar sprungur. Mæli hiklaust með þessum túr.

picasaweb.google.com/gudjonbj/Eyjafjallajokull_Public#

Re: Skíðafæri við höfuðborgina? 18 apr 2011 16:19 #11732

Skrifað 18 apr 2011 16:19
Mán. 18. apríl kl. 16:00

Talsvert snjóað í nótt og dag. Fínt utanbrautarfæri og færi almennt. Búið að vera blint í morgun en er að birta til eins og spáði. Helgin búin að vera ágæt a.m.k. hægt að skjælast utanbrauta með þokkalegu móti.

Allar skíðaleiðir á kafi í snjó og langt niður á snjógirðingar. Nú vantar örfáa daga uppá að hér hafi verið smekkfullt af snjó samfellt í þrjá mánuðuði. Samt ekki opið nema 28 daga það tímabil. Ekki nóg að hafa snjó segir máltækið. Hvassviðri hefur því hamlað opnun í ca. 2/3 tímans.

Kv. Árni Alf.

Re: Skíðafæri við höfuðborgina? 18 apr 2011 18:01 #11734

Skrifað 18 apr 2011 18:01
Kl. 18:00 Status report.

"Awesome" færi eins og maðurinn sagði. Draumi líkast að plægja gegnum gyllta skaflana sem reyndar eru á fleygiferð vegna lágarennings. Þeir eru auðvitað gylltir vegna sólarinnar. Svona Sahara stemmning í þessu. Einn fallegasti dagur vetrarins.

En að öðru. Sennilega ekki verið jafn mikill snjór a.m.k. sunnan heiða í áratug eða meira á þessum tíma árs. Menn hljóta að vera að farnir að plana magnaðar skíðaferðir í vor eða þegar lagðir af stað. Reyndar er spáin fyrir páskana herfileg sunnanlands sýnist mér. Slagveður sem byrjar á hádegi skírdag og nær fram yfir helgi a.m.k. En slíkt þarf ekkert að stoppa menn. Páskana 2004 fór ég Suðurjöklaferð í svona herfilegri spá. Frábær ferð blaut á köflum en frábært þess á milli.

Kv. Árni Alf.

Re: Skíðafæri við höfuðborgina? 19 apr 2011 08:54 #11735

Skrifað 19 apr 2011 08:54
Jæja Árni, á ekki að starta eins og einni lyftu snemma í dag. Vonlaust að þurfa að vera drepa tímann í vinnunni til tvö!
picasaweb.google.com/ivarfinn

Re: Skíðafæri við höfuðborgina? 19 apr 2011 09:31 #11736

Skrifað 19 apr 2011 09:31
Þriðjudagur kl. 9:00

Fjallið lítur feikna vel út. Hér hefur snjóað í nótt og utanbrautafæri lítur snilldarvel út. Þessa dagana byrja sumar lyftur að snúast löngu fyrir hádegi vegna æfinga skíðafélaganna. Status report seinna.

Kv. Árni Alf.

P.S. Skv. spánni gerir skítviðri seint í kvöld.

Re: Skíðafæri við höfuðborgina? 19 apr 2011 09:56 #11737

Skrifað 19 apr 2011 09:56
Þessi status update þín eru algjör snilld Árni, takk fyrir þetta.

Sissi

Re: Skíðafæri við höfuðborgina? 19 apr 2011 10:37 #11738

Skrifað 19 apr 2011 10:37
Og hvað? Má maður þá mæta snemma?
picasaweb.google.com/ivarfinn

Re: Skíðafæri við höfuðborgina? 19 apr 2011 17:06 #11740

Skrifað 19 apr 2011 17:06
Kl: 17:00 Status report.

Hér er farið að snjóa duglega í mátulega hvassri sunnanátt. Færið svo sem búið að vera ágætt en skyggni farið að daprast. Ívar flúinn úr Fjallinu.

Kv. Árni Alf.

Re: Skíðafæri við höfuðborgina? 20 apr 2011 15:26 #11747

Skrifað 20 apr 2011 15:26
Miðvikudagur 20. apríl 2011 kl: 15:00

Snjóaði mikið í gær. Flott utanbrautarfæri þó í blautari kantinum sé. Snjóflóð fallið víða og þætti vænt að menn virtu snjóflóðaviðvaranir sunnan Kóngs. Sól og blíða milli élja. Gullfallegt veður og hugsanlega síðasti skíðadagur vetrar.

Kv. Árni Alf.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.46 sek