Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Telemark festeval rokkaði feitt.

Telemark festeval rokkaði feitt. 14 mar 2011 09:50 #11595

Skrifað 14 mar 2011 09:50
Ég var aðaltöffarin á staðnum held ég.
12032011_800x600.jpg

Re: Telemark festeval rokkaði feitt. 14 mar 2011 11:07 #11596

Skrifað 14 mar 2011 11:07
Það held ég líka. Fyrir utan Skíðaskinkurnar að sjálfsögðu...

Takk fyrir helgina

Skabbi

Re: Telemark festeval rokkaði feitt. 14 mar 2011 11:07 #11597

Skrifað 14 mar 2011 11:07
Takk fyrir helgina.

Næst verður verra veður og ömurlegra færi þá er mun léttara að halda mönnum við efnið að keppa í samhliðasvigi og taka á því í búningakeppninni.

Vonandi skemmtu allir sér vel.

kveðja

Re: Telemark festeval rokkaði feitt. 15 mar 2011 20:26 #11608

Skrifað 15 mar 2011 20:26
Ég vil meina að ég hafi verið flottasti nýliðinn ;)

Re: Telemark festeval rokkaði feitt. 17 mar 2011 22:58 #11617

Skrifað 17 mar 2011 22:58
Skíðaskinkurnar komu að sjálfsögðu til að sjá og sigra og vera sætastar.
Mishárprúðir telemark-kallar börðust um að fá að bera skíðin okkar (meira að segja upp á brún) og köllin úr lyftunum heyrðust um allar brekkur...,,sjáiði GELLURNAR!".

Þið getið ímyndað ykkur hversu mikið þetta kitlaði hégómagirndina, sætasæta. Það var því einróma ákvörðun að halda áfram að skíða í dressinu svo örvæntið eigi.

Bestu þakkir fyrir alla athyglina. Ég held að ég þakki henni fyrir árangurinn í samhliða sviginu.


kveðjan.

Re: Telemark festeval rokkaði feitt. 18 mar 2011 12:45 #11619

Skrifað 18 mar 2011 12:45
Skíðaskinkumyndir já takk!!
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re: Telemark festeval rokkaði feitt. 18 mar 2011 13:38 #11620

Skrifað 18 mar 2011 13:38
Vá hvað ég er sátt með þá ákvörðun Sveinborg! Ég sá mynd af ykkur og þið voruð mega flottar!
Sé það alveg fyrir mér að næsta season verði allar útivistarbúðir fullar af svona 'outfittum'!
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.33 sek