Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Aðstæður í Reykjavík

Aðstæður í Reykjavík 03 feb 2011 09:57 #11328

Skrifað 03 feb 2011 09:57
Fór í Hljómskálagarðinn í gærkveldi. Flott gönguskíðafæri. Notaði bláan. Skíðalyftur í borginni eru hins vegar lokaðar. Snjóleysi borið við. Hélt nú að þegar gras er undir þyrfti nánast engan snjó. En svona er Reykjavík í dag.

Kv. Árni Alf.

Re: Aðstæður í Reykjavík 03 feb 2011 20:08 #11333

Skrifað 03 feb 2011 20:08
Talandi um það, hefur einhver séð til ísa í nágrenni Rvk eftir hlákuna?
Enginn átt leið framhjá Eilífsdal eða séð hvernig Tvíbbinn er að bunkast í fjúkinu?

Re: Aðstæður í Reykjavík 03 feb 2011 21:01 #11334

Skrifað 03 feb 2011 21:01
Mætti svo sem koma fram að útlit er fyrir að við opnum í Bláfjöllum á laugardaginn. Göngubraut var lögð í dag og renningur af fólki. Hér eru útsynningsél, bjart á milli og talsverður lágarenningur. Eitt fallegasta vetrar- og skíðaveður sem til er.

Kv. Árni Alf.

Re: Aðstæður í Reykjavík 05 feb 2011 09:12 #11337

Skrifað 05 feb 2011 09:12
Laugard.5 feb. kl.9:00

Það má segja að hér í Bláfjöllum sé allt á kafi í snjó. Enn er mikil ofankoma og skafrenningur svo lokað er í dag. Vegurinn hér upp úr er meira að segja aðeins jeppafær sem er sjaldgæft. Frábær dagur til að fara út að leika sér en hafa snjóflóðahættu í huga sem er eðlilega mikil.

Kv. Árni Alf.

Re: Aðstæður í Reykjavík 05 feb 2011 16:43 #11338

Skrifað 05 feb 2011 16:43
Hvað segiru Árni, e-r líkur á því að það verði opið á morgun?

Skabbi

Re: Aðstæður í Reykjavík 05 feb 2011 18:27 #11339

Skrifað 05 feb 2011 18:27
Hæfilega bjartsýnn á morgundaginn. Smálægð á Faxaflóa gerir allar spár mjög ónákvæmar. Í gær var t.a.m. spáð hæglætisveðri og úrkomulausu. Reyndin varð allt önnur. Spár eru spár en við reynum allt til að opna.

Færði út kvíarnar í dag og fór alla leið í Heiðmörkina á skíði. Fyrst yfir mjög úfið hraun og svo yfir golfvöll. Svo inn með Vífilsstaðahlíðinni inn að Búrfellsgjá umvafinn ilmi barrtrjánna.

Af skíðalyftum innan borgarmarkanna er það að frétta að það á að reyna að opna á mánudaginn. Mér sýnist skv. veðurspá að mestallur snjór verði farinn úr borginni í síðasta lagi á miðvikudag. Dálítið dæmigert fyrir Reykjavíkurborg.

Kv. Árni Alf.

Re: Aðstæður í Reykjavík 06 feb 2011 18:43 #11340

Skrifað 06 feb 2011 18:43
Dagurinn í dag var eðall. Gott færi, mjög lítið skyggni. En það hefur þó þau jákvæðu hliðaráhrif að maður getur þrætt ferskt púður ferð eftir ferð án þess að fólk fatti það.

Sýnist að morgundagurinn verði alls ekki síðri, gæti sést til sólar og svona.

Sissi

Re: Aðstæður í Reykjavík 08 feb 2011 10:56 #11353

Skrifað 08 feb 2011 10:56
Við fórum nokkur á Móskarðshnjúkana í gær.
Það er töluvert af snjó þarna uppfrá, og alveg hægt að þræða gil og skorninga, en það vantar base.
Sárt að skíða niður úr lausasnjónum niður í grjótið.
Vonum að hláka næstu daga búi til fínan base!

IMG_8067.jpg
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.34 sek