Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Púlkur

Púlkur 16 des 2010 10:18 #10929

Skrifað 16 des 2010 10:18
Sælar

Ég, í félagi við fleiri, hygg á gönguskíðaævintýri á Vatnajökli um páskana. Er illa græjaður og er því farinn að huga að útbúnaði. Sá þetta á pressunni í dag. Hvað segja reynsluboltar? Myndi þetta virka sem púlka?

Svo rakst ég á þennan frábæra norska hjólavagn sem er hægt að breyta í púlku. Er þetta eitthvað sniðugt í hardkor jöklaskíðaferð?

Öll góð ráð vel þegin.

Svo vantar mig skíði og tilheyrandi ef einhver liggur á slíku.
Er 181 cm (og fáránlega myndarlegur) og nota skóstærð 43-44.
Bragi

edit: hér er mynd af NordicCab í notkun.

Re: Púlkur 16 des 2010 13:06 #10930

Skrifað 16 des 2010 13:06
Guð minn góður, hvaða ormagryfju ertu búinn að opna núna.
picasaweb.google.com/ivarfinn

Re: Púlkur 16 des 2010 13:41 #10931

Skrifað 16 des 2010 13:41
...og hvort er betra að bíða af sér aftakaveður í snjóhúsi eða tjaldi?

Ívar...þú ert nú vanur maður í bransanum. Hvað er þitt take á púlkukontróversinu?

Re: Púlkur 16 des 2010 13:56 #10933

Skrifað 16 des 2010 13:56
Loksins er talað um eitthvað áhugavert hérna :)

Ég myndi nú segja að þetta sem glaðlegi norðmaðurinn á myndinni er með í eftirdragi væri fulllítið. En það fer lítið fyrir sölu á dráttarsleðum á íslandi og er það miður en einhver uppgangur er í gönguskíðamenningunni þessa dagana. Ég frétti af 120cm löngum púlkum sem fyrirtæki á Dalvík er að selja. Þeir eru með einhverja sleðatúra í Eyjafjörðinn austanverðann sem þeir nota þessa sleða í. Svo væri líka raunhæft fyrir 10-12 manns að taka sig saman og panta frá Rei t.d svona Paris sleða. Ættu ekki að vera of dýrir ef margir eru pantaðir. Annars held ég að þessir sleðar í tenglinum séu þessir frá Dalvík sem ég nefndi. Og þeir gætu alveg miðað við myndina gengið vel upp í svona verkefni.
N.b ég er sjálfur á leið í svona leiðangur um eða eftir páska :)

Slóð á Paris sleðana. Þeir eru mjög góðir og á góðu verði, úti amk.
www.rei.com/product/609482

Ég hringdi í Kaldbaksferðir og þeir eru að selja þessa sleða á 9900 krónur og senda hvert á land sem er.

Re: Púlkur 16 des 2010 14:23 #10935

Skrifað 16 des 2010 14:23
www.google.is/search?rlz=1C1GGGE_enIS367IS367&sourceid=chrome&ie=UTF-8&q=isalp.is+p%C3%BAlka+p%C3%BAlkur

Það segir sitt um ágæti púlkna, að þeir sem eru að þjálfa sig fyrir stórjöklagöngur hafa stundað að draga á eftir sér liggjandi hjólbarða í bandi.
Ef þú ætlar að æfa þig fyrir sleðadrátt er þér óhætt að hafa dekkin upprétt, láta þau snúast á legu, og tengja þau við þig með kjálkum svo þau taki ekki frammúr.....

Hefur þú velt því fyrir þér hvort þú rennir hraðar niður Kaldbakinn á skíðum eða snjóþotu?

Góðar stundir

Re: Púlkur 16 des 2010 16:01 #10937

Skrifað 16 des 2010 16:01
Ég á nokkrar svona þunnar skeljar sem hægt væri að fá fyrir lítið. Virka fínt við klifurbelti og spotta þræddan í gegnum ragmagnsrör.
Rúnar Karlsson
href='www.BoreaAdventures.com/' :: href='www.NorthExplorers.is/'

Re: Púlkur 17 des 2010 21:40 #10944

Skrifað 17 des 2010 21:40
Það er verst að það er ekki hægt að leita í gamla spjallinu. Einhver allengsti þráðurinn þar var ormagryfjan sem Ívar bendir á.

Gætir leigt parísarpúlku hjá Fjallaleiðsögumönnum ef þú vilt ekki eyða peningum eða geymsluplássi í púlku.

Re: Púlkur 17 des 2010 22:38 #10945

Skrifað 17 des 2010 22:38
Hugsa að leiguleiðin verði niðurstaðan.

Re: Púlkur 18 des 2010 11:06 #10948

Skrifað 18 des 2010 11:06
Steinar Sigurðsson wrote:
Það er verst að það er ekki hægt að leita í gamla spjallinu.


Sást þú ekki leitarstrenginn hér að ofan? -Það er alsstaðar hægt að leita.

Minni á að ég á ennþá púlku úti í skúr. Hún stendur til boða hverjum þeim sem lofar að skila henni ekki aftur...
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.23 sek