Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Allt sem við kemur rennsli á snjó.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Telemark festivalið

Telemark festivalið 15 mar 2010 09:15 #10084

Skrifað 15 mar 2010 09:15
Sæl,

Við viljum þakka öllum fyrir komuna og hjálpina.
Nú í ár, eins og síðustu ár, hafa margar hendur hjálpast að til að gera
Festivalið sem skemmtilegast. Við vonum að allir hafi skemmt sér vel.

kveðja
Bössarnir og Valli

Re:Telemark festivalið 15 mar 2010 09:41 #10085

Skrifað 15 mar 2010 09:41
Takk fyrir mig!
Hér má sjá myndir úr fjallinu á heimasíðu Vetraríþróttamiðstöð Íslands
vmi.is/is/gallery/vh_2010/telemarkhelgin/

Re:Telemark festivalið 17 mar 2010 10:37 #10091

Skrifað 17 mar 2010 10:37
Þetta var mjög skemmtilegt festival, keppnin í traustum höndum, stemmningin frábær og allir kátir. Saknaði þess reyndar að sjá dvergana í fjallinu svo að staðið væri við þetta mittisdjúpa....

Apré ski-ið var geggjað og hátíðin í torfbænum skemmtileg nýbreytni. Það sem helst má setja út á var verðlaunakynnirinn, sem var mjög einbeittur og hvass ef ekki bara leiðindagaur. Fangbrögð við Evrópudómarann réttu það allt af, en svona til að rétta misskilning af þá voru þau til gamans gerð og glímumenn báðir hinir kátustu að fangbrögðum loknum.

Takk öll fyrir skemmtilega samveru !
Góli, Maggý og restin af Team Garðabær!

Re:Telemark festivalið 17 mar 2010 10:37 #10092

Skrifað 17 mar 2010 10:37
p.s. gaman væri að sjá fleiri myndir......

Re:Telemark festivalið 17 mar 2010 18:43 #10093

Skrifað 17 mar 2010 18:43
Ég þakka kærlega fyrir góða skemmtun um helgina. Mér fannst skíðaskálastemmingin í torfbænum í Hrafnagili sérstaklega viðeigandi. Ég setti nokkrar myndir á netið: picasaweb.google.com/jonhroi/Telemarkfestival2010?feat=directlink
Kveðja,
Jón Hrói
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.30 sek