Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Klifur í sumar. Vídjó

Klifur í sumar. Vídjó 25 okt 2009 23:57 #9169

Skrifað 25 okt 2009 23:57
Jæja, aðeins að dunda mér í dag að setja í eitt vídjó.

Fínt að koma fiðring í fólk á þessum frábæru tímum með nóg af rigningu.

youtube.com/watch?v=x5738MYhCOg



Endilega kíkið á þetta meistaraverk.

Ási

Svar:Klifur í sumar. Vídjó 26 okt 2009 08:21 #9170

Skrifað 26 okt 2009 08:21
Siggi klifrar svo rólega og yfirvegað að maður fær engan fiðring heldur finnur bara fyrir syfju. Það var aðeins fyrir goluna og að maður sá bolinn aðeins blakta að ég steinsofnaði ekki yfir þessu.

En hvernig er með þennan ís. Í fyrra var maður búinn að komast eina ferð í Múlafjall á þessum tíma ...

Svar:Klifur í sumar. Vídjó 26 okt 2009 09:04 #9171

Skrifað 26 okt 2009 09:04
Já, þetta er hresst, eða alla vega áhugavert.
Vissulega rétt hjá Gulla að það er ekki verið að bjóða upp á nein stökk og læti þarna en gaman öngvu að síður. :)
Góð leið...

Þessi rigningarsuddi mætti klárlega alveg fara að hætta fljótlega.

Svar:Klifur í sumar. Vídjó 26 okt 2009 10:34 #9172

Skrifað 26 okt 2009 10:34
Rok á Hnappó! Why I never..

Töff myndband. Falleg afgreiðsla á 'yfirhanginu'.

þetta minnir mig á það að mig langar sjúklega að sjá Progression! Félagi minn sagðist hafa farið á gráta yfir henni, haha.

Svar:Klifur í sumar. Vídjó 26 okt 2009 11:54 #9173

Skrifað 26 okt 2009 11:54
Mér hlínar bara um hjartað við að sjá þessa flottu leið fá svona fallega uppáferð.

kv.
Palli

Svar:Klifur í sumar. Vídjó 26 okt 2009 11:55 #9174

Skrifað 26 okt 2009 11:55
Ég er nú ekki sammála Gulla, horfði á allt myndbandið og hafði gaman af. Það er alveg eitt semi stökk þarna.

Progression var sýnd í KH á föstudagskvöldið og boðið upp á afbragðsgott popp og kók. Ótrúlega flott mynd, alveg sikk. Þar tekur Tommy Caldwell feitan dýnó einhverstaðar í kringum 10 spönn á Kafteininum, þannig að Gulli myndi líklega ekki sofna yfir þeirri mynd.

Sissi

Svar:Klifur í sumar. Vídjó 26 okt 2009 13:16 #9175

Skrifað 26 okt 2009 13:16
Ahh, klikkaði á broskallinum ... ekki illa meint, bara reyna stríða Sigga aðeins ... en það er ekkert nýtt að ég og Sissi séum ekki sammála

Svar:Klifur í sumar. Vídjó 26 okt 2009 13:43 #9176

Skrifað 26 okt 2009 13:43
Það er bara ekki rétt Gulli.

Svar:Klifur í sumar. Vídjó 26 okt 2009 13:43 #9177

Skrifað 26 okt 2009 13:43
Ohh ertu ekki að grínast! Jæja, þetta fæ ég fyrir að skrópa í KH. Er hægt að kaupa myndina í sjoppunni?

Djöfulsins.

Svar:Klifur í sumar. Vídjó 26 okt 2009 15:11 #9178

Skrifað 26 okt 2009 15:11
Anna Guðbjört Sveinsdóttir upplýsti:
Ohh ertu ekki að grínast! Jæja, þetta fæ ég fyrir að skrópa í KH. Er hægt að kaupa myndina í sjoppunni?

Djöfulsins.


Var það ekki, skrópað í Klifurhúsið til að hanga í sjoppunni. Er það svona sem afreksmenn verða til?

Herra rigningarmánudagur....

Svar:Klifur í sumar. Vídjó 31 okt 2009 11:12 #9208

Skrifað 31 okt 2009 11:12
Já þetta er flott leið, einhvernveginn tókst mér að klifra hana aldrei né sjá hana nokkurtíman klifraða á öllum mínum Hnappavalla árum. Undarleg yfirsjón því leiðin virðist standa undir nafni!

kv. Hrappur
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.39 sek