Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Vesturbrúnir Esju. Hnetubrjóturinn

Vesturbrúnir Esju. Hnetubrjóturinn 30 ágú 2009 10:05 #8980

Skrifað 30 ágú 2009 10:05
Ég fór í góðra vina hóp í vesturbrúnir Esju í gær laugardag.
Ryfjaði upp gömul og góð kynni af Hnetubrjótinum.

picasaweb.google.com/pallsveins/VesturbrunirEsjuHnetubrjoturinn#

kv.
Palli

Svar: Vesturbrúnir Esju. Hnetubrjóturinn 01 sep 2009 08:16 #8986

Skrifað 01 sep 2009 08:16
Gaman að þessu...hef oft verið að velta því fyrir mér hvar þessi leið sé.

Verður heimsótt við tækifæri.

kv,
Steppo

Svar:Vesturbrúnir Esju. Hnetubrjóturinn 01 sep 2009 09:36 #8987

Skrifað 01 sep 2009 09:36
Lítur vel út - nú spyr sá sem ekkert veit. Hversu langt, hversu margar spannir, hversu mikið dót og hvaða gráður?

Kv. Ágúst Kr

Svar:Vesturbrúnir Esju. Hnetubrjóturinn 01 sep 2009 10:01 #8988

Skrifað 01 sep 2009 10:01
Mjög langt, margar spannir, fullt af dóti og frekar erfit.

En svona í alvöru þá er þessi leið einhverstaðar skráð og ég kann ekki við að bulla eitthvað.

En mín skoðun er samt að þetta sé flottasta leiðin og besta klifrið upp vesturbrúnirnar.

Samferðarmenn mínir munu örugglega segja að leiðin sé stórhættuleg og drullu erfið.

Verst að ég hafði ekki númerið þitt til að bjóða þér með.

kv.
Palli

Svar:Vesturbrúnir Esju. Hnetubrjóturinn 01 sep 2009 12:49 #8991

Skrifað 01 sep 2009 12:49
Gaman!

Ég man ekki eftir að hafa heyrt af þessarri leið.
Hver verður nú fyrstur til að finna djásnið í gömlu ársriti og segja okkur hinum frekari deili á leið þessarri.

F.
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Svar:Vesturbrúnir Esju. Hnetubrjóturinn 01 sep 2009 18:11 #8992

Skrifað 01 sep 2009 18:11
Í ársriti ÍSALP 1986 stendur eftirfarandi.

"Meginhryggurinn milli leiðar nr. 3 og 4 var farinn í september af þeim Kristni Rúnarssyni og Þorsteini Guðjónssyni. Leiðin hlaut nafnið Hnetubrjótur og er af IV.-V gráðu"

Leið 3 og 4 má sjá í ársriti ÍSALP 1985.

Þeir félagar tíndust svo í Himalayafjöllum við að reyna við (fara) nýa leið en þá sögu kunna aðrir betur en ég.

Ég get alveg komið með mína útgáfu af gráðun og leiðarlýsingu á þessari flottu leið en ég vil helst gera það inn á mínum síðum.

kv.
Palli

Svar:Vesturbrúnir Esju. Hnetubrjóturinn 02 sep 2009 16:35 #8995

Skrifað 02 sep 2009 16:35
Point taken!

F.
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.41 sek