Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Ný leið í Munkanum

Ný leið í Munkanum 10 ágú 2009 11:42 #8905

Skrifað 10 ágú 2009 11:42
Daginn góðir hálsar

Það er mér mikil ánægja að tilkynna að undirritaður ásamt Eiríki Geir Ragnars (aka. das Zwilling) hreinsaði og boltaði nýja leið í Munkanum í síðustu viku.
Leiðin er upp áberandi rennu lengst til vinstri í aðalveggnum, ca. 10m vestan við Talíu og co. og er búin 5 boltum auk eins bolta akkeri, sem hægt er að teygja sig í til að hreinsa tvistana úr (eins og með flestar leiðir í Munkanum).
Stykkið hefur vinnuheitið Englaryk þar til annað kemur í ljós og er cirkabát gráða hennar 5.9-ish. Geymum formlega gráðu þar til fleiri hafa prílað djásnið og kommnentað.
Ágætis viðbót við annars mjög svo góða flóru í Munkanum.

Rétt er að geta þess að þessi hluti klettanna er aðeins lausari í sér en hinir og því alveg möguleiki að eitthvað detti þarna niður (fyrir utan fólkið sem e.t.v. dettur á krúxinu :) og því mælst til þess að tryggjarinn standi ekki beint undir þeim sem klifrar. Þetta sama á við um fleiri leiðir þarna, s.s. Undir brúnni, sem er með lausar flögur á kafla og smásteina uppi á brún.

Hér er einkar döpur mynd sem ég tók af leiðinni. Gefur vonandi sæmilega mynd af þessu til fróðleiks.

DSC00072_sm.JPG

Re:Ný leið í Munkanum 11 ágú 2009 10:34 #8908

Skrifað 11 ágú 2009 10:34
Flott framtak, hlakka til að smakka á þessu við næstu heimsókn norður.

Skoðaðir þú eitthvað betur klettana undir brúnni sunnan megin um helgina?

Re:Ný leið í Munkanum 11 ágú 2009 12:54 #8910

Skrifað 11 ágú 2009 12:54
Já, var í nokkra tíma að moka mosa og mykju úr Fýlupúka, leiðinni sunnan við brú.
Skoðaði ágætlega vel dótið undir brúarstöplinum en náði ekki að prófa það neitt. Þarf að setja vinnuakkeri undir brúna til að geta sigið almennilega í það til að smakka á því með klifri. Gafst ekki tími í það eftir að ákveðið var að mixa nýju leiðina. Kemst vonandi í að gera meira í þessu í næsta túr.

Re:Ný leið í Munkanum 11 ágú 2009 14:58 #8911

Skrifað 11 ágú 2009 14:58
Snillingur!

Re:Ný leið í Munkanum 11 ágú 2009 18:04 #8914

Skrifað 11 ágú 2009 18:04
Ég er sammála Slugger, nei Skabba meina ég.

Re:Ný leið í Munkanum 11 ágú 2009 18:24 #8915

Skrifað 11 ágú 2009 18:24
Mjög góð leið fyir byrjendur mæli með henni,heheheheheh

Re:Ný leið í Munkanum 16 ágú 2009 17:15 #8937

Skrifað 16 ágú 2009 17:15
Skemmtileg leið! 5.9 hljómar vel fyrir hana. Misstum einn eða tvo steina úr henni, svo að það er greinilega eitthvað laust þarna.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.27 sek