Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Munkinn um helgina

Munkinn um helgina 03 júl 2009 15:02 #8796

Skrifað 03 júl 2009 15:02


Erum nokkur á leiðinni norður í land um helgina, reiknum með að vera í Munkanum laugardag og sunnudag, ef e-r vilja líta við.

Allez!

Skabbi
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Munkinn um helgina 03 júl 2009 21:36 #8798

Skrifað 03 júl 2009 21:36
og við félagarnir sem erum venjulega í Munkanum ætlum í labbitúr á morgun.

Kannski einhverjir hérna á Akureyri verði klárir á sunnudag.

Ég sjálfur ætla að stökkva á bak, eftir Kerlingu - Súlur röltið á morgun, og brenna í Húnaver á landsmót Snigla.
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Munkinn um helgina 03 júl 2009 22:36 #8799

Skrifað 03 júl 2009 22:36
Stefni á labbið á morgun og múnkaþvæling á sunnudag.
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

SkinnMúnkinn 06 júl 2009 15:31 #8808

Skrifað 06 júl 2009 15:31


Það fór svo að við byrjuðum helgina á því að keyra inn í Vatnsdal og kíkja á leiðirnar í Skinnhúfuklettum. Stórskemmtilegt svæði þó lítið sé og trúlega vannýtt.

Við fórum:

"Hilti-Brand" (5.8) - snúin í byrjun og skítlétt að ofan, pínu ójöfn en sæmileg leið.

"Erfiðasta 5.5 í heimi" (5.9) - Stórskemmtileg slab leið, vel boltuð og löðrandi góð í alla staði.

"Pálsleið" (5.10a) - Önnur perla, létt yfirhangandi á kafla á góðum tökum. Gamlir boltar í bland við nýja sem er pínu spes, væri líklega ráð að fjarlægja þá elstu.

Daginn eftir keyrðum við í Munkann. Ofan í gilinu var rjómablíða eins og svo oft áður. Í hitunum undanfarna daga hafði reyndar áin vaxið verulega, var kolmórauð, ófrýnileg og hávær eftir því.

Eitt af því sem gerir Munkann að skemmtilegu svæði er ágætis safn af hágæða leiðum í léttari kantinum. Talía (5.6), UV (5.7), Sófus (5.8), Stuð fyrir stutta (5.9), Bláa Ullin (5.9), Stóru mistökin (5.9) og Undir Brúnni (5.9). Sú síðastnefnda er reyndar albesta 5.nía á landinu að mínu mati. Hinar reyndar allar stórfínar.

Við klifruðum í Munkaþverárgili seinnipart laugardags og frá hádegi fram að kaffi á sunnudag í glaðasólskini og steikjandi hita. Urðum ekki vör við mannaferðir í gilinu. Ég hirti tvist úr leiðinni "Bláa Ullin", ef e-r saknar hans má sá hinn sami hafa samband.

Allez!

Skabbi
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.

Re:Munkinn um helgina 06 júl 2009 16:14 #8809

Skrifað 06 júl 2009 16:14
Já, Hlunkaþverá klikkar ekki.
Afar hressar leiðir, fáar lélegar leiðir og fjölmargir gullmolar.
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.31 sek