Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Klifurhúsið í stærra húsnæði

Klifurhúsið í stærra húsnæði 12 des 2008 09:52 #7593

Skrifað 12 des 2008 09:52
Til hamingju Kjartan og co. með silfrið í leiðsluklifri í Svíþjóð á dögunum. Þetta er frábær árangur!
Sjá:
www.klifurhusid.is/?subj=frettir
www.visir.is/article/20081207/IDROTTIR/611460642/-1

Þetta leiðir hugan að því að aðstaðan í Klifurhúsinu er löngu sprungin og sportið þarf sárlega að komast í stærra og betra húsnæði þar sem einnig væri boðið upp á leiðsluklifur. Sportið myndi örugglega blómstra á næstu misserum ef það bara kæmist í gott húsnæði.

Reykjavík og ÍTR hafa lofað Klifurhúsinu nýrri aðstöðu í nokkurn tíma, en efndirnar eru takmarkaðar. Talað var um að reisa nýtt hús, en einhvernvegin finnst manni ólíklegt að af því verði á næstunni. Á krepputímum er mikil samkeppni um fjármagn og líklegt er að tiltölulega ungt og óþekkt sport verði undir í þeim slag.

En ef ekki verður verður af húsbyggingum, því þá ekki að fá ÍTR til að sponsora hentugt húsnæði sem þegar er til staðar. Nú í kreppunni á eftir að losna um eithvað af atvinnuhúsnæði sem gæti hentað Klifurhúsinu.

Fyrir nokkrum árum klifraði ég í alveg frábærri aðstöðu í Ottawa í Kanada. Það klifurhús er í gömlu rafstöðvarhúsi sem staðsett er við á sem liggur i gegnum Ottawa. Sjá:
www.verticalreal.com/indoor/index_e.php

Hljómar kunnulega ekki satt: Í gömlu rafstöðvarhúsi sem staðsett er við á sem liggur í gengum bæinn!

Gæti ekki gamla rafstöðvarhúsið í Elliðaárdal hentað, þar er hátt til lofts og vítt til veggja? Það vill svo til að húsið er nýlega komið í eigu Reykjavíkurborgar.

Það er reyndar samkeppni um húsið, sjá:
www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/12/12/nyskopun_i_dalnum/

Mig grunar hinsvegar að dýrt yrði að útbúa þetta hús sem nýsköpunarsetur. Betra yrði að finna nýsköpunarsetri aðstöðu í einhverju skrifstofuhúsnæði sem á eftir að losna núna í kreppunni. Það verður örugglega nóg af slíku.

Elliðaárdalurinn er hinsvegar rétt staðsetning fyrir útivistar-, íþróttar- og fjallamennskustarfsemi. Húsið er sennileg of stórt fyrir Klifurhúsið, en Klifurhúsið gæti deilt húsinu með fleirum félögum eða fyrirtækjum á svipuðu sviði.

Bara pæling!

Með kveðju
Helgi Borg

svar: Klifurhúsið í stærra húsnæði 12 des 2008 11:02 #7594

Skrifað 12 des 2008 11:02
Mjög góðar pælingar... spurning hvað Klifurhússfólkið hefur að segja um þetta... og um stöðu mála.

svar: Klifurhúsið í stærra húsnæði 12 des 2008 12:19 #7595

Skrifað 12 des 2008 12:19
Athiglisverð grein um rafstöðvarhúsið.
Ef mig minnir rétt þá er ástæðan fyrir því að það sé ekki búið að rífa það er að það er asbest klætt og mengunin sem myndi fylgja niðurrifinu myndi líklega drepa lífríki Elliðaáa.

Ef ég skil rétt þá er það sama ástæða fyrir því að það standi autt og hefur staðið autt í mörg mörg ár, en það er að húsið er talið heilsuspillandi útaf asbestinu.

Hvernig Reykjavíkurborg ætlar að breyta þessu er ég ekki viss.

kveðja

Doddi

Asbest er úrvals efni..... 12 des 2008 13:20 #7596

Skrifað 12 des 2008 13:20
Húsið er "asbest klætt og mengunin sem myndi fylgja niðurrifinu myndi líklega drepa lífríki Elliðaáa."

Góð hugmynd með rafstöðvarhúsið.

Vert að minna að asbest er EKKI eitrað og má geta þess að Íslendingar hafa í gegnum tíðina sopi drjúgt og baðað sig í vatni sem flutt er eftir asbestleiðslum.
Asbest er hinsvegar hvöss, þráðlaga steind sem veldur alvarlegum áverka á lungum ef það kemst þangað í formi ryks.....

svar: Asbest er úrvals efni..... 12 des 2008 17:37 #7597

Skrifað 12 des 2008 17:37
Nýtt og stærra húsnæði er klárlega það sem klifursamfélagið á Íslandi þarf á að halda. Við eigum fullt af efnilegum klifrurum sem hefur sannast á erlendum vettfangi! Verst er hvað græðgin hefur nú farið illa með íslenskt samfélag og hvað horfurnar eru daprar fyrir framtíðina. En kannski getum við snúið þessu í okkar hag eins og t.d. með þessa hugmynd um rafstöðvahúsið. Ef asbestið er vandamál þá er kannski tækifæri annarstaðar? Ég er til í að leggja mitt af mörkum eins og ég get, þegar ég er fyrir sunnan!
kv. Öddi
ps. Svo bráðvantar vegg hénna á Hóla ;)

Sport-Höll 12 des 2008 22:22 #7598

Skrifað 12 des 2008 22:22
Mér líst bilaðslega vel á þessa staðsetningu, svo væri æðislegt að setja upp kayak aðstöðu þarna í húsinu. Enda Elló holan alveg við bílastæðið. :)

svar: Sport-Höll 15 des 2008 09:51 #7599

Skrifað 15 des 2008 09:51
Talandi um innanbæjaraðstöðu, getur ekki einhver tekið að sér að læða vatnsleiðslu á svona 100 m kafla í norðurhliðina á Úlfarsfelli?
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.24 sek