Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Ópus klifinn í fjórða sinn...

Ópus klifinn í fjórða sinn... 31 júl 2008 12:38 #7079

Skrifað 31 júl 2008 12:38
...held ég.
Ég sé ekki betur á 8a.nu en að Kristó hafi farið überleiðina Ópus á Hnappó (í fjórðu tilraun). Leiðin er sem fyrr gráðuð 8b eða 5.13d í okkar kerfi.
Valdi fór leiðina aftur um daginn þannig að þetta ætti að hafa verið fjórða ferðin upp leiðina á eftir Bjössa og Valda (x2).

Til lukku með þetta, Kristó!

Einhver önnur klettaafrek nýlega annars eða nýjar leiðir settar upp?

Robbi boltaði víst tvær nýjar leiðir við tjaldstæðið á Hnappó um daginn og voru þær báðar víst í 5.9-10a skalanum. Eru þær vinstra megin við Sinfóníu (5.11c) og var önnur þeirra hálfkláruð af Elmari (akkeri klárt og einhver hreinsun).

svar: Ópus klifinn í fjórða sinn... 01 ágú 2008 00:35 #7080

Skrifað 01 ágú 2008 00:35
Heiei!

Ég veit um eitt klettaafrek.


Mér finnst að frammistaða klifraranna á Hnappavallamaraþoninu sé algert afrek.

Aldrei eins margar leiðir klifraðar á einni helgi og aldrei eins mikið af kalki í klettunum. Allir lögðu sig fullkomlega fram til að markmiðið næðist.

Takk til allra sem gerðu maraþonið að alvöru viðburði og algeru afreki.

HRG.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.19 sek