Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Klifurmaraþon

Klifurmaraþon 21 júl 2008 09:09 #7038

Skrifað 21 júl 2008 09:09
Já og hvernig gekk síðan klifurmaraþonið? Einn voða spenntur að heyra,

Gimp :)

svar: Klifurmaraþon 21 júl 2008 10:45 #7039

Skrifað 21 júl 2008 10:45
Gidday mayt!

Klifurmaraþonið tókst frábærlega í alla staði, held ég að ég megi fullyrða. Rjómablíða á Hnappavöllum alla helgina, kannski helst til heitt í sólinni í gærmorgun en menn létu sér það þó vel líka.

Menn klifurðu hver um annan þveran bæði laugardag og sunnudag. Flestir voru að keyra sig virkilega út við að klára leiðir og ef ég tala fyrir sjálfan mig þá var þetta frábært spark í rassinn. Ég klifraði allavega leiðir sem mér hefði aldrei dottið í hug að skoða fyrir viku síðan.

Kristín Marta og "Mömmurnar" grilluðu læri og meðlæti ofaní mannskapinn á laugardagskvöldið, alveg hreint frábært. Þær eiga allar mínar þakkir skyldar fyrir það aftur. Takk fyrir mig!


Þegar ég kvaddi vellina í gær voru langflestar leiðirnar klifraðar. Ópus og "Ceus er ekki til" stóður reyndar enn út af borðinu og kannski ekki líklegt að þær næðu að klárast. Bernd var að bisa við "Litlu lúmsku leiðina" og einhverjir voru vestur í Skjóli að reyna við leiðirnar þar. Annars var þetta bara að verða búið.


Ég þakka bara fyrir mig og öllum sem lögðu leið sína á Hnappavelli um helgina.

Allez!

Skabbi

svar: Klifurmaraþon 21 júl 2008 10:56 #7040

Skrifað 21 júl 2008 10:56
það kláruðust allar leiðirnar nema þær tvær erfiðustu, Ópus og Ceus!!! -þær voru ekki í aðstæðum þessa helgina því það var of heitt!

takk fyrir frábæra helgi. ótrúlega gaman að fylgjast með kraftinum, sjá tvista í leiðum út um allt og alla vera að rauðpunkta, onsighta og flassa leið eftir leið af max erfiðleika!

svar: Klifurmaraþon 21 júl 2008 11:41 #7041

Skrifað 21 júl 2008 11:41
Takk fyrir mig...

þetta var sko mega massa stuhuð!

svar: Klifurmaraþon 21 júl 2008 15:56 #7042

Skrifað 21 júl 2008 15:56
Þetta var besta klifurhelgi sem ég hef upplifað á Hnappavöllum hvorki meira né minna. Það var í raun frábært að vera með verkefni allan tíman og smá pressu á að klára, það hélt manni við efnið og maður var að gera betur en áður.

Held að það sé alveg öruggt að margir voru að uppgötva nýjar leiðir og gera eitthvað sem þeir hefðu aldrei gert nema út af þessu maraþoni. Hið besta mál.

Svo var þvílík stemning og frábær matur á laugardagskvöldinu. Ekki skemmdi veðrið fyrir sem var snilld alla helgina!

Húrra fyrir öllum sem mættu, klifruðu, kvöttu, elduðu, spiluðu og skemmtu sér og öðrum. Thumbs up fyrir skipuleggjendum.

svar: Klifurmaraþon 21 júl 2008 21:26 #7043

Skrifað 21 júl 2008 21:26
Frábærar þakkir til allra sem mættu og þeirra sem hjálpuðu til við að gera þetta að frábærri helgi.

Ég hef aldrei séð eins marga klifra eins erfitt og þeir geta og gefa ekkert eftir.

Stuð til Stínu fyrir hugmyndina og skipulagninguna og matinn.

Ég hef sjaldan verið jafn þreyttur eftir klifurhelgi á Hnappavöllum og það er æði.

Mega mótíverandi.

Venga!
HRG.

svar: Klifurmaraþon 21 júl 2008 21:34 #7044

Skrifað 21 júl 2008 21:34
Og takk fyrir allt kalkið á klettunum. Mér fannst ekkert smá gaman að sjá allar leiðir þaktar kalki og bendimerkjum (sem eru líklega afmáð eftir fellibylslinginn).

Takk til Bergþóru og Unnar fyrir að munda hnífana og frábæra hjálp.

Takk til ljósmyndaranna Stínu M, Gumma T, Unnar, Jóns Viðars og annarra sem skrásettu klifrið með myndum.

Og aftur takk til allra klifraranna sem lögðu sálina að veði svo takmarkið næðist.

Venga!
HRG.

svar: Klifurmaraþon 21 júl 2008 21:36 #7045

Skrifað 21 júl 2008 21:36
Já og Zeus er með Z

( ;

svar: Klifurmaraþon 21 júl 2008 22:02 #7046

Skrifað 21 júl 2008 22:02
Frábær helgi, velheppnuð í alla staði.

Takk fyrir mig!!

Gunni

svar: Klifurmaraþon 22 júl 2008 08:20 #7047

Skrifað 22 júl 2008 08:20
Frábær helgi, takk fyrir mig. Ef einhver hefur fundið titanium gaffal þá er hann að öllum líkindum minn.
robbi

svar: Klifurmaraþon 22 júl 2008 08:30 #7048

Skrifað 22 júl 2008 08:30
sammála, þetta var últra mega massa stuð. Þreyta eftir helgina var í hámarki, skinn á fingrum í lágmarki, en gleði og mótivasjón í hámarki.
Takk kærlega til allra sem mættu og skemmtu sér á völlunum

svar: Klifurmaraþon 22 júl 2008 12:12 #7049

Skrifað 22 júl 2008 12:12
Hvenær koma myndir?

svar: Klifurmaraþon 23 júl 2008 22:17 #7050

Skrifað 23 júl 2008 22:17
Já, takk fyrir mig, þetta var frábært. Veðrið, klifrið og stemmingin allt alveg frábært. Og þetta lambalæris framtak var alger snilld, sjaldan bragðað betri mat.

E-r myndir frá helginni hér:

grettisgata.eitthvad.is/main.php?g2_itemId=3920

Kveðja,
Gullz

svar: Klifurmaraþon 24 júl 2008 00:35 #7051

Skrifað 24 júl 2008 00:35
Eitt takk í viðbót til hópstjóranna sem hjálpuðu við að halda utan um leiðirnar. Sá að ég gleymdi að geta þeirra ( ; (og á þá við Jón Viðar, Stebba Smára og Hauk Elvar).

Hlakka til á næsta ári því ég held að það sé óumflýjanlegt að endurtaka þetta alla vega einu sinni enn.

Venga!
HRG.

svar: Klifurmaraþon 24 júl 2008 11:43 #7052

Skrifað 24 júl 2008 11:43
Jámm, risastórt takk fyrir mig, alveg snilldar klifurhelgi!
Hjá mér er rauður Black Diamond tvistur sem saknar eigandans, hver á? Mig vantar aftur á móti einn appelsínugulan BD tvist.
Cheers, Sædís.

svar: Klifurmaraþon 24 júl 2008 13:33 #7053

Skrifað 24 júl 2008 13:33
...og ég er með bláa túbu og stóra gráa Camp karabínu sem varð eftir á borðinu við tjaldstæðið og saknar eiganda síns.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.45 sek