Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Hnappavallamaraþon

Hnappavallamaraþon 07 júl 2008 15:44 #7019

Skrifað 07 júl 2008 15:44
Hæ,

Ég minni á Hnappavallamaraþonið ( :

Helgina 19.-20. júlí ætlum við að klifra (rauðpunkta) allar boltaðar leiðir á Hnappavöllum í sameiginlegu átaki. Verkefnið krefst heilmikillar skipulagningar, því eru allir hvattir til að vera með og skrá sig sem fyrst. Helgin á eftir verður höfð til vara ef veður leyfir ekki klifur þessa helgi.

Ég ætla að biðja þátttakendur um að velja sér leiðahóp www.klifurhusid.is//pdf/hnappavellir_2008.pdf
og senda mér póst á hjalti hjá klifurhusid.is til þess að auðvelda skipulagningu.



Sjáumst,
Hjalti Rafn.

svar: Hnappavallamaraþon 08 júl 2008 21:09 #7020

Skrifað 08 júl 2008 21:09
Hæ,

ég ætla líka að minna á Hnappavallahátíðina!

Ef að þáttakendur eru feimnir við að skrá sig og velja sér leiðahóp má alltaf koma og hvetja. Dúskar og mínípils sérstaklega mikið velkomin.

Fjör og gaman, vei.

Aldrei að vita nema glænýtt samkomutjald Ísalp verði vígt á völlunum.
FIB
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

svar: Hnappavallamaraþon 10 júl 2008 23:20 #7021

Skrifað 10 júl 2008 23:20
Jó!

Núna eru 34 búnir að skrá sig í Hnappavallamaraþonið og það er sko pláss fyrir fleiri. Það væri ÆÐI ef allar leiðirnar féllu og klettarnir yrðu hvítir af kalki (rigningin þrífur það svo af í vikunni á eftir svo ekki óttast sjónmengun).

Við ætlum að hittast næsta miðvikudag klukkan 2000 í Klifurhúsinu og spá í strategíuna ( ( ; ) og það væri frábært ef sem flestir sem verða með geta mætt eða sent mér tölvubréf áður svo ég geti raðað á leiðir og bunka.

Við ætlum svo að bjóða upp á gómsæti úr sveitinni á laugardagskvöldinu á milli púldaganna.

Venga vúú jéé og koma svo!
Hjalti Rafn.

svar: Hnappavallamaraþon 11 júl 2008 15:21 #7022

Skrifað 11 júl 2008 15:21
...þá vantar bara Einar fulltrúa Öræfanna og hvernig er það Erin og Ísfeld, fáið þið ekki frí úr Skaftafelli til að klifra með okkur? Og fyrst ég er byrjuð hvað með Ísafjarðar krúið, Örvar Dóri, Rúnar Óli og Eiríkur?

sjáumST

svar: Hnappavallamaraþon 16 júl 2008 10:58 #7023

Skrifað 16 júl 2008 10:58
já það væri gaman að fá fulltrúa Vestfjarða á svæðið og vonandi kíkja Einar og fjallaleiðsögumenn í Skaftafelli á okkur.

Spáin lítur bara ágætlega út og hitatölur fara hækkandi, bara að krossa putta.

Hlakka til að sjá sem flesta á Hnappavöllum um helgina.

svar: Hnappavallamaraþon 16 júl 2008 15:55 #7024

Skrifað 16 júl 2008 15:55
Ég er nú tæplega fulltrúi Vestfjarða...og þó...brottfluttur hið minnsta. Ætla að reyna allt til þess að þurfa ekki að vinna þessa helgi svo ég geti haldið kyndlinum á lofti. Hef ekki heyrt af fleiri Vestfirðingum sem ætla að mæta, en skora á þá hér með.

svar: Hnappavallamaraþon 17 júl 2008 14:23 #7025

Skrifað 17 júl 2008 14:23

svar: Hnappavallamaraþon 17 júl 2008 18:37 #7026

Skrifað 17 júl 2008 18:37
Fjallaleiðsögumenn kíkja örugglega á laugardagskvöldið. Hér fyrir austan er botnlaust að gera þannig við komum ekki fyrr en um kvöldmat.

Kveðjur úr Skaftafelli.
Ági
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.27 sek