Lítill fugl hvíslaði því að mér að Valdi (Valdimar Björnsson) hafi gert sér lítið fyrir og endurtekið überleiðina Ópus í Vatnsbólinu á Hnappavöllum í gær, sunnudag.
Leiðin er sú erfiðasta hér á landi (hugsanlega fyrir utan ókláruð project í Gimlukletti) og gráðast 5.13d eða 8b.
Leiðina fór hann í ca. 10. tilraun þann daginn en eitthvað hafði hann prófað hana fyrr í sumar.
Valdi er þar með þriðji Íslendingurinn til að klifra 8b en meistari Björn Baldursson fór Ópus fyrstur manna árið 1996 ca. og hún aldrei verið endurtekin síðan (hvorki af BB né öðrum). Hjalti Rafn Guðmundsson fór 8b leiðina Oraculo í El Chorro um jólin 2006-2007.
Nokkrir af okkar knáustu sporklifrurum hafa verið að vinna í Ópus síðustu ár án þess að ná klára stykkið...
Fyrir þá sem ekki vita þá fóru tvær ungar grjótstjörnur 8a+ (5.13c) í Siurana og Montsant á Spáni um síðustu jól en það voru Kristján Þór Björnsson (Kristó) og Kjartan Björn Björnsson (bróðir Valda), Stungust þeir þar með upp fyrir 8a á undan Valda en hann gerði s.s. gott betur með Ópus.
Óskum Valda til hamingju með árangurinn (og Kristjáni og Kjartani að sjálfsögðu einnig)!