Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Klifur í Lúx

Klifur í Lúx 25 apr 2007 17:20 #5162

Skrifað 25 apr 2007 17:20
Veit einhver um klifurstaði í Lúxemborg og nágrenni? Af einhverjum ástæðum gengur mér illa að finna upplýsingar um þetta og fara nú að verða síðustu forvöð áður en ljúfa lífið í Lúx nær yfirtökum.

SM + 4kg

P.s. Til marks um fjallamennskuáhuga Lúxemborgara má geta þess að Club Alpin í Lúxemborg er áhugamannafélag um sportbíla.

svar: Klifur í Lúx 25 apr 2007 17:43 #5163

Skrifað 25 apr 2007 17:43
Stebbi, Árni og Bjössi klifruðu þar fyrir nokkrum árum.
Athugaðu þá.

HRG.

svar: Klifur í Lúx 25 apr 2007 18:06 #5164

Skrifað 25 apr 2007 18:06
eða sent þeim póst, e9climbing.nl

tala ekki málið en þetta er líka eitthvað... www.indoorclimbing.com/luxembourg.html

þó innanhúss sé?

Himmi

svar: Klifur í Lúx 25 apr 2007 23:58 #5165

Skrifað 25 apr 2007 23:58
Sæll Skúli,

Óþarfi að láta sér leiðast þrátt fyrir að vera dottinn í hið ljúfa líf evrókratans! Smá leit á netinu kom upp með:

www.climbing.lu/index1.html

www.trekearth.com/gallery/Europe/Luxembourg/photo631931.htm

Passaðu bara að slasa þig ekki, held nefnilega að eina viðurkennda sportið hjá EFTA Court nái í mesta lagi yfir golf!

kv,
JLB

svar: Klifur í Lúx 26 apr 2007 10:32 #5166

Skrifað 26 apr 2007 10:32
hæ skúli,

fann í fljótu bragði þetta. Heyrði annars kappa í vinnunni tala um klifur á Berdorf í Lúx, ég skal spyrja hann um nánari málavöxtu.

kv.
Halli

www.ukclimbing.com/databases/crags/craginfo.html?id=1947
www.rockclimbing.com/routes/Europe/Luxembourg/Echternach/Berdorf/
www.direttissima.com/berdorf/

svar: Klifur í Lúx 26 apr 2007 12:12 #5167

Skrifað 26 apr 2007 12:12
Kærar þakkir fyrir þetta. Hér er sól og 25 stiga hiti dag eftir dag svo að inniklifrið heillar lítið í augnablikinu. Berdorf virðist vera aðalstaðurinn. Væntanlega best að sækja um nauðsynleg leyfi og setja í eina leið.

svar: Klifur í Lúx 26 apr 2007 16:54 #5168

Skrifað 26 apr 2007 16:54
....já maður fer víst lítið í leyfisleysi,

Gimp
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.31 sek