Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Boltun við Snorrastaðatjarnir

Boltun við Snorrastaðatjarnir 21 apr 2006 13:43 #3934

Skrifað 21 apr 2006 13:43
Við fórum nokkrir Hafnfirðing út að Hæstahjalla við Snorrastaðatjarnir á Reykjanesi til að fagna sumri með smá klettaklifri.

Mér til mikilla vonbrigða hefur einhver tekið sig til og boltað toppankeri yfir tvær af bestu leiðunum. Nú er ég ekki mikill öfgamaður, hvorgi með né á móti boltun, en þarna á hún engan vegin rétt á sér. 7 stórir múrboltar settir í stórar stein nibbur sem þræl passa fyrir slinga. Auk þess er illa gengið frá boltum og þeir eru engum nýtilegir nema að menn komi sjálfir með augu og rær með sér.

Veit að ég er væntanlega ekki að skammast út í rétta mannskapin en langaði bara að koma þessu á framfæri. Hvet alla til að vera almennt vakandi fyrir góðri umgengni á klifursvæðunum okkar. Einnig að vanda til verka þegar menn eru að bolta. Mér finnst að minnsta kosti tveir snyrtilegir boltar, vel frágengnir með keðju á milli, í slétta klöpp sem býður ekki upp neinar aðrar trygginar vera allt annað mál heldur en illa frágengin hrúga af múrboltum.

svar: Boltun við Snorrastaðatjarnir 22 apr 2006 23:54 #3935

Skrifað 22 apr 2006 23:54
ja svei!

Hvar eru annars Snorrastaðatjarnir?

Vogunum??

F.
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

svar: Boltun við Snorrastaðatjarnir 26 apr 2006 12:53 #3936

Skrifað 26 apr 2006 12:53
En hvernig kemst maður að háabjallanum núna, er ekki búið að grafa allt í tætlur þar sem gamli afleggjarinn inn að snorrastaðatjörnum var?

svar: Boltun við Snorrastaðatjarnir 26 apr 2006 14:31 #3937

Skrifað 26 apr 2006 14:31
Tu ert væntanlega ad tala um leidina med gamla vininum og eina tarna vid hlidina. Tad hefur allavega ekki verid vandamal med toppankeri tarna adur og buid ad klifra tarna i tonokkur ar. Kannski hægt ad bolta toppankeri vid adrar ledir eda bolta leidir tarna, hver veit ?!?
kv. Josef
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.33 sek