Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Ný leið í Vestrahorni

Ný leið í Vestrahorni 19 ágú 2004 15:53 #1897

Skrifað 19 ágú 2004 15:53
Skrifað af Rafni Emilssyni.

Hrappur og ég kláruðum að græja nýja leið í horninu fyrir skemmstu. leiðin liggur að mestu leiti hægra megin við ódysseif og er sex spannir sem allar eru vel boltaðar. allar spannirnar eru uþb 5.10 fyrir utan eina sem er um 5.8 eða níu. Leiðin ber nafnið Saurgat Satans og er ágætis viðbót við fjölspanna flóruna hér á landi.
innan skamms mun koma frekari leiðarlýsing með myndum og tilheyrandi á vefinn en ef einhverjir hyggja á að klifra leiðina er best fyrir þá að hafa samband við okkur og fá alla ræðuna.

Einnig vil ég benda á að leiðin er ekki sportklifurleið þó að margir boltar séu í henni, því lausir steinar geta leynst í henni ásamt því að hún krefst almennrar þekkingar á fjölspanna klifri.

-já og eitt í viðbót ef hún er klifruð með single rope þá er 60m lína nauðsynleg ef menn vilja komast niður aftur með góðu móti.

...og svo vona ég bara að sem flestir eigi eftir að eiga ánægjulegar stundir í saurgatinu....

Rafn Emilsson
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: Ný leið í Vestrahorni 19 ágú 2004 17:14 #1898

Skrifað 19 ágú 2004 17:14
Snilld. Hlakka til að renna austur og grípa í grjótið.
Geturðu gefið upp Emil eða síma sem er hægt að ná í ykkur Vestrahornsbræður?

svar: Ný leið í Vestrahorni 20 ágú 2004 07:55 #1899

Skrifað 20 ágú 2004 07:55
Snilld drengir! Enn meiri ástæða til að keyra austar en Hnappavellir.

svar: Ný leið í Vestrahorni 20 ágú 2004 12:12 #1900

Skrifað 20 ágú 2004 12:12
Ömurlegt hjá ykkur piltar.
Ég ætla aldrei að renna austar en Hnappavellir.
Búú!!!

svar: Ný leið í Vestrahorni 20 ágú 2004 12:44 #1901

Skrifað 20 ágú 2004 12:44
Segðu Djonn, segðu. Það er eins og það er..hmmmm

svar: Ný leið í Vestrahorni 20 ágú 2004 14:23 #1902

Skrifað 20 ágú 2004 14:23
Rafn sonur Emils skrifar..
abbababb...

ég er með leyninúmer.. og hrappur er væntanlega í símaskránni.

emilinn minn er Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og heimasími 5658424.

.... Mamma þín er Bú... -og nær austar en Hnappavellir....
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: Ný leið í Vestrahorni 29 ágú 2004 00:57 #1903

Skrifað 29 ágú 2004 00:57
'eg gæti sagt ykkur símann hjá mér en þá þyrfti Rafn að drepa ykkur :(
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.39 sek