Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Búhamrar

Búhamrar 17 ágú 2004 13:07 #1887

Skrifað 17 ágú 2004 13:07
Hvað eru þetta eiginlega orðnar margar boltaðar leiðir Búhömrum? Hefur einhvers staðar eitthvað verið sett á blað um þessar leiðir?
Kv. Boltamaðurinn

P.s.
Hvað segja menn annars um Valshamar, eru ekki möguleikar á að fjölga þar boltuðum leiðum eitthvað með smá hreinsunaraðgerðum, sérstaklega norðan megin í hamrinum.

svar: Búhamrar 17 ágú 2004 13:23 #1888

Skrifað 17 ágú 2004 13:23
Í Fílabeinsturninum eru tvær klifnar leiðir og þrjár óklifnar.
Klifruðu leiðirnar eru 5.12c "Vítisbjöllur" og 5.13b "Helgríma".
Rétt þar hjá er leið sem Snævarr fór fyrir mörgum árum, 5.12b, "Mefisto", tvær spannir.
Rétt vestan við Nálina er "Gandreiðin" hans JBD, um 5.10.
Austast í Búhömrum er svo "Rauði turninn" 5.9 tvær spannir, og ein leið í viðbót sem ég kann ekki alveg deili á.

Það eru mörg tök í viðbót undir mosanum nyrst í Valshamri. Málið er að fletta ofan af þeim. Ég hugsa að það mætti gera 2-3 fínar leiðir í léttari kanntinum þar í viðbót.

Nóg að sinni,

Hjalti Rafn.

svar: Búhamrar 17 ágú 2004 15:18 #1889

Skrifað 17 ágú 2004 15:18
Þetta eru þær leiðir sem ég þekki. Má vera að ég gleymi einhverju.

HRG

svar: Búhamrar 17 ágú 2004 17:02 #1890

Skrifað 17 ágú 2004 17:02
Rétt er að benda á að seinni spönnin í Rauða turninum er boltuð fyrstu 10-15m og svo tekur við ca. 10m runout upp slabb og upp 2m haft þangað til komið er að sigakkerum á klöppinni uppi. Reyndar er þetta létt klifur en ef einhverjum skyldi detta í hug að detta þarna þá gætu slæmir hlutir gerst. Hef yfirleitt tekið eitthvað af dóti með til að henda inn undir síðasta haftinu.

Leiðin við hliðina á Rauða turninum er ca. 5m austar og er ca. 5.7. Byrjar létt upp mosavaxið slabb (langt á milli bolta) en verður svo skemtilegri ofar og endar í bolta með ólæstri bínu. Ágætis upphitun fyrir Turninn. Þekki ekki nafnið á henni.

Fór annars að leita að Gandreiðinni um helgina og fann ekki (fórum að skrölta í Vítisbjöllunum í staðinn...). Fórum nefnilega Nálina um daginn og enduðum á akkerum sem mér skildist á Bjössa að væru í Gandreiðinni. Fann þó enga bolta í fyrstu tilraun á veggnum neðan við þau akkeri.
Getur einhver lýst nánar aðkomunni að þeirri leið? Þarf að síga niður þessi akkeri eða byrjar leiðin úr gilinu vestan við Nálina?

svar: Búhamrar 18 ágú 2004 09:41 #1891

Skrifað 18 ágú 2004 09:41
Ef þú gengur eftir syllunni til vinstri/vesturs þar sem fyrri spönninn í Nálinni endar muntu ramba á leiðina. Á undan Gandreiðinni rekstu á Dyragættina að ég held. Flott dótaleið upp sprungu sem endar uppi á brún. Gott ef hún er ekki 5.8. Man það samt ekki alveg.

Steppo

svar: Búhamrar 23 ágú 2004 11:32 #1892

Skrifað 23 ágú 2004 11:32
Takk fyrir uppl. Tókst að finna Rauða turninn eftir smá barning fyrir helgi. Hefði átt að lesa skeytið frá Hjalta betur. Ræði ekki hvernig við komumst upp, en upp komumst við. Einn slingur fannst mér vera nóg fyrir 10 m "run-out-ið" sem Sigurður Tómas nefnir. Er það rétt skilið að leiðin við hliðina á Rauða turninum sé 5.7? Veit einhver frekari deili á henni, s.s. hvort hún er ein spönn og hvort maður þarf að nota eitthvert dót í henni?
Kv. SM

P.s. Verða að skrifa undir það sem fram hefur komið hér á vefnum áður að í B-hömrum er augljóslega fullt af ónýttum möguleikum fyrir boltaðar leiðir.

svar: Búhamrar 01 sep 2004 11:11 #1893

Skrifað 01 sep 2004 11:11
leiðin við hliðina á rauða turninum (hægramegin) er 5.7 og er hin ágætasta upphitun. Hún er þokkalega mosavaxin og bergið í henni á það til að molna(svona svipað og í turninum).
Leiðin er ágætlega boltuð en mig minnir að það sé eylítið langt á milli bolta svona sumstaðar, man það ekki alveg langt síðan ég klifraði hana.
robbi

svar: Búhamrar 03 sep 2004 13:27 #1894

Skrifað 03 sep 2004 13:27
Takk fyrir uppl. Maður þarf greinilega að prófa þessa leið. Svo þyrfti maður að fara mæla út fyrir fleiri 5.7-5.9 leiðum þarna í nágrenninu.
Kv. SM

svar: Búhamrar 06 sep 2004 02:37 #1895

Skrifað 06 sep 2004 02:37
Ég klifraði nú leiðina við hliðina þessa 5.7 fyrir einhverjum árum og surprise nokkrir hnullar rúluð úr henni og enginn endir varð að skilja eftir bínu í síðasta bolta. Vandlega hreynsuð og frágenginn leið einsog flestar aðra frá sama höfundi.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.24 sek