Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a

5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 02 nóv 2011 22:01 #12258

Skrifað 02 nóv 2011 22:01
Tíðindi úr klifurheiminum.

Valdimar Björnsson náði að klifra leiðina Darwin dixit áðan (sector laboratori í Margalef).
Hann er þar með fyrsti Íslendingurinn til að klifra 8b+ eða 5.14.a.
Valdi kláraði leiðina eftir 8 daga vinnslu (tveir dagar í fyrra og sex núna).

Til hamingju Valdi. Njóttu lífsins á Spáni. Þú ert snillingur!

Kveðjur úr snjókomunni í Finnmörku
JVS
Notendur sem þakka:: Berglind Aðalsteinsdóttir

Re: 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 02 nóv 2011 22:18 #12259

Skrifað 02 nóv 2011 22:18
Glæsilegt!!! Innilega til hamingju með árangurinn Valdi.
Afreksíþróttamaður hér á ferð :)

bestu kveðjur,
Berglind, Arnar og Katla María

Re: 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 02 nóv 2011 23:01 #12260

Skrifað 02 nóv 2011 23:01
Glæsilegt Valdi, til hamingju!

Smári

Re: 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 03 nóv 2011 08:34 #12269

Skrifað 03 nóv 2011 08:34
Glæsilegt!
picasaweb.google.com/ivarfinn

Re: 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 03 nóv 2011 08:42 #12270

Skrifað 03 nóv 2011 08:42
Flottur Valdi, til hamingju! Hvaða leið er svo næst?

Re: 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 03 nóv 2011 11:12 #12272

Skrifað 03 nóv 2011 11:12
Til hamingju Valdi!

Re: 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 03 nóv 2011 16:23 #12275

Skrifað 03 nóv 2011 16:23
Magnað og já loksins... :)
Til hamingju Waldorf og haltu áfram á sömu braut!

Re: 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 03 nóv 2011 16:52 #12276

Skrifað 03 nóv 2011 16:52
Fáránlega vel gert Valdi. Hlakka til að heyra og sjá eitthvað af þessari leið og uppferð þinni.

Re: 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 03 nóv 2011 16:59 #12277

Skrifað 03 nóv 2011 16:59
Vá! Þetta er rosalegt, gráða sem maður eiginlega skilur ekki. Til hamingju með þetta kappi.

Re: 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 03 nóv 2011 21:30 #12282

Skrifað 03 nóv 2011 21:30
Frábær árangur hjá Valda!
Í raun löngu tímabært miðað við árangur síðustu ára (4*8b o.s.fv.). Hann heldur ótrauður áfram og næst leggur hann Sviss undir fót (og hönd).

Fagna umræðum og fréttum af afrekum í klettaklifri!

Re: 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 03 nóv 2011 22:43 #12283

Skrifað 03 nóv 2011 22:43
Mátti til að kíkja á Youtube og sá einhvern Thomas Schmi...rja sig þarna upp. Tek að ofan fyrir þér Valdi og er ... flabbergasteraður!
kveðja til Spánar
Jón Gauti

Re: 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 8b+ 5.14a 15 nóv 2011 18:45 #12312

Skrifað 15 nóv 2011 18:45
Valdi á forsíðunni á 8a.nu (listinn vinstra megin). Geðveikt!

8a.nu/

Re: Valdi að massa: Nú er það grjótglíman 21 nóv 2011 14:24 #12320

Skrifað 21 nóv 2011 14:24
Eins og Sissi benti á klifraði Valdi eina 8A (V11) grjótglímu um daginn. Nú bætti hann um betur og fór leiðina Freak Brothers 8A+ (V12) í Chironico í Sviss. Þetta er erfiðasta grjótglímuleið sem Íslendingur hefur klifrað.

Fyrir þá sem ekki eru talnaglöggir þá eru grjótglímur af gráðunni 8A ógeðslega erfiðar og 8A+ leiðir eru fáránlega ógeðslega erfiðar.

Kveðja,
AB
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.49 sek