Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Skyler á Trango

Skyler á Trango 21 okt 2011 11:25 #12215

Skrifað 21 okt 2011 11:25
Félagi Skyler var að senda mér myndir sem ég bara verð að deila með ykkur. Hann var ásamt tveimur öðrum í Pakistan og tékkaði á Trango Tower hvorki meira né minna. Ekkert byrjendastöff það.

Fyrir þá sem ekki vita bjó Skyler hér á landi í nokkur ár, var á beisinu. Þar var hann í einkonar heli-medic teimi. Eftir að hann fór frá Íslandi vann hann lengi í Yosemite við björgunarstörf. Gott ef hann er ekki þar enn.

Ólíkt mörgum sem voru á vellinum nennti hann ekki bara að hanga þar og klifraði ís með lókalnum. Hress náungi og vonandi fær maður tækifæri til að klifra með honum aftur.

Enjoy!

Re: Skyler á Trango 22 okt 2011 10:15 #12216

Skrifað 22 okt 2011 10:15
Næs! Granít. Namm.

Re: Skyler á Trango 24 okt 2011 00:07 #12217

Skrifað 24 okt 2011 00:07
Hann er harður drengurinn...
Klárlega með spakari mönnum sem hefur mætt á svæðið.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.23 sek