Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Rifið í Skessuhorni

Rifið í Skessuhorni 14 sep 2011 23:23 #12139

Skrifað 14 sep 2011 23:23
Í dag skelltum við Gísli Símonar okkur í Skessuhorn og klifruðum Rifið. Leiðin er mjög opinn, flott og alvarleg. Leiðin er mjög laus en býður upp á skemmtilegar hreyfingar og flottar spannir. Þónokkuð magn af grjóti færðist úr stað við klifrið og önnur línan okkar skarst inn að kjarna.
Allt í allt áhugaverður dagur í góðu veðri.

Ági

P9140849__b.JPG


P9140866__b.JPG


ps. Ef einhvern langar til að verða fyrstur til að klifra ísfoss þennan veturinn þá eru lækir og gil í norðanverðri Skarðsheiði að frjósa og sáum við þónokkra þunna ísfossa.

Re: Rifið í Skessuhorni 14 sep 2011 23:50 #12140

Skrifað 14 sep 2011 23:50
Flottir, síðasta teymi sem ég man eftir þarna hafði meðal annars eldiviðaröxi meðferðis til að hreinsa lausa meterinn svokallaða af Rifinu. Minnir nú að þeir hafi ekki lýst klifrinu með jafn jákvæðum lýsingarorðum og þið.

En það er líka kominn skænir inni í Eilífsdal og frábært friction í Valshamri í hauststillunum.

Re: Rifið í Skessuhorni 15 sep 2011 11:17 #12141

Skrifað 15 sep 2011 11:17
Vel gert!

Kveðja,
AB

Re: Rifið í Skessuhorni 15 sep 2011 11:28 #12143

Skrifað 15 sep 2011 11:28
Upphrópanirnar sem fuku á meðan að klifrinu stóð voru ekki sérlega jákvæðar . Ef horft er framhjá lausa draslinu þá ætti þessi leið að vera algjör klassík miðað við staðsetningu og útlit leiðarinnar. Ég hef samt enga þörf fyrir að fara þessa leið aftur í bráð nema þá kannski að vetri til þegar að fjallið er frosið fast saman. Klifrið var tæpara og tímafrekara en við bjuggumst við og erfiðleikarnir voru eiginlega jafnir alla leið. Annars fundum við allskonar drasl á leiðinni, slinga, prussik, karabínur, fleyga og hnetu.

Setti nokkrar myndir inn hérna.

Ági

Re: Rifið í Skessuhorni 16 sep 2011 23:35 #12149

Skrifað 16 sep 2011 23:35
Hetjur.
Á eftir að prófa þetta um sumar. Hressandi vetrarklifur alla vega.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.29 sek