Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Hnappavellir uppfært

Hnappavellir uppfært 14 ágú 2011 21:46 #12082

Skrifað 14 ágú 2011 21:46
Mikið líf og fjör á Hnappavöllum í blíðunni nú um helgina. Auk þess sem nýjar klifurleiðir voru boltaðar og klifraðar þá tókst að ljúka smíðavinnu við Tóftina. Hún telst því kláruð og fullfrágengin. Óska klifrurum til hamingju með aðstöðuna en minni um leið á mikilvægi þess að allir fylgi húsreglunum. Með því móti mun Tóftin veita öruggt skjól um ókomin ár.

Hér eru Sædís, Berglind, Unnur og Hulda við klifur í Hádegishamri.
_MG_3254a.jpg

Re: Hnappavellir 16 ágú 2011 10:51 #12085

Skrifað 16 ágú 2011 10:51
Hvílík endemis snilld.
Alltaf að batna aðstaðan fyrir austan og ekki komið svona margar nýjar leiðir í fjölda ára. Hlakka til að fara og smakka á þessu nýjasta.
Voru annars komnar upplýsingar um nöfn, staðsetningu og erfiðleika á nýju leiðunum?

Re: Hnappavellir 16 ágú 2011 11:54 #12086

Skrifað 16 ágú 2011 11:54
Það væri nú gaman ef menn myndu taka sig til og laga skráningu leiða hér á vefnum, búið að liggja niðri í nokkur ár sem er bagalegt þar sem þetta var ein helsta lífæð síðunnar og mikilvæg heimild.

Myndi klárlega einfalda mönnum lífið jafnt í sumar- og vetrarklifri.

Re: Hnappavellir 16 ágú 2011 19:02 #12087

Skrifað 16 ágú 2011 19:02


Já, staðsetning, nöfn og gráður.
Hér er samantekt sem sett er fram með fyrirvara (athugasemdir og viðbætur vel þegnar):


HÁDEGISHAMAR
Frá vestri til austurs:

0. Föðurland 5.13c
Valdimar Björnsson
Leið sem Kristó og Jósef boltuðu.

1. Herra alheimur 5.10b
Jósef Sigurðsson og Guðlaugur Ingi Guðlaugsson

2. Nýfundnaland 5.5
Arnar Þór Emilsson og Berglind Aðalsteinsdóttir

3. Með biblíuna í annarri 5.9 (5.10a)
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson, Manuela Magnúsdóttir og Jósef Sigurðsson

4. Og byssuna í hinni 5.10a (5.10b)
Jósef Sigurðsson, Manuela Magnúsdóttir og Guðlaugur Ingi Guðlaugsson

5. Hey kanína 5.8
Jón Viðar Sigurðsson

6. Risaeðlan 5.9
Stefán Steinar Smárason

7. Hellisbúinn 5.10a
Arnar Þór Emilsson, Berglind Aðalsteinsdóttir og Sædís Ólafsdóttir

8. Steinbúinn 5.10a
Berglind Aðalsteinsdóttir og Sædís Ólafsdóttir


SALTHÖFÐI

1. Strumpaland 5.3
Sigrún Björk Stefánsdóttir

Re: Hnappavellir uppfært 21 ágú 2011 22:18 #12099

Skrifað 21 ágú 2011 22:18
Valda tókst að sigra Föðurlandið og nýjar leiðir á Völlunum því orðnar 10 í sumar (sjá lista að ofan). Enn um tveir mánuðir eftir af klifurtímabilinu og því spurning hvort eitthvað bætist við.

Re: Hnappavellir uppfært 22 ágú 2011 10:19 #12102

Skrifað 22 ágú 2011 10:19


Þvílík endemis snilld! Stórt hrós til allra sem að verkinu komu, sem og til Jóns Viðars og allra sem unnið hafa í Tóftinni í sumar.

Allez!

Skabbi - sem gerði ekki jack

Re: Hnappavellir uppfært 22 ágú 2011 20:10 #12106

Skrifað 22 ágú 2011 20:10
Glæsilegt Valdi!

Re: Hnappavellir uppfært 26 ágú 2011 10:18 #12112

Skrifað 26 ágú 2011 10:18
Vel gert Valdi og miklar þakkir til allra sem stóðu að opnun nýrra leiða.
Fékk Föðurlandið gráðu? 8b+?
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.45 sek