Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Tapað fundið í Munkaþverá

Tapað fundið í Munkaþverá 30 júl 2011 19:07 #12066

Skrifað 30 júl 2011 19:07
Daginn

Drengirnir sem voru að klifra í Munkaþverá um síðustu helgi og gleymdu toppakeri í Talíu getið sótt dótið til mín.

Arnar Þór Emilsson
8630679

Ný leið í Munkanum 04 ágú 2011 22:31 #12070

Skrifað 04 ágú 2011 22:31
Jæja gott fólk, við Arnar Emils jóðluðum nokkrum boltum í nýja leið í Munkanum í dag.

Leiðin byrjar 5m hægra megin við Englaryk og fer upp afar tignarlegan pillar/horn í efra partinum. Neðri parturinn er léttur (5.5-6?) en efstu 5-6m eru í 5.10+ skalanum (jafnvel 5.11 - varla samt).
Sennilega er hægt að klifra neðri partinn af þessari og hliðra yfir í efri partinn af Englaryki ef menn leggja ekki í pillarinn.

Boltarnir eru á góðum og solid stöðum en á pillarnum er verið að klifra á eilítið losaralegu stöffi (4-5 tonna risaflaga) boltarnir eru á öðrum traustari hluta af pillarnum. Ef stykkið hrynur þá fara boltarnir alla vega ekki með... :)
Flest laust var hamrað burt og nokkur gallon af mosa mulin af með vírbursta og þolinmæðinni.

Alveg frábært tæknilegt klifur upp þennan pillar þó svo neðri parturinn sé svo sem ekki neitt Nóbelsverðlaunaklifur. Fínasta viðbót í safnið...

Nafn er í vinnslu og gráðan verður settluð þegar fleiri hafa vippað sér þarna upp. Fyrstu hugmyndir voru upp á 5.10c-d en það gæti verið tóm tjara. Sendið endilega á okkur línu ef þið eruð með skoðun á gráðunni.

Rétt er að benda á að hafa tryggjarann með hjálm og í skjóli til hliðar (vinstra megin er sennilega best, beint undir Englaryki)!
Muna bara að fara varlega...

Bon appetit!

Gullmoli fundinn í Búahömrum 11 sep 2011 23:25 #12136

Skrifað 11 sep 2011 23:25
Ekki eru bara fersku hlutirnir að gerast á Hnappó þetta sumarið, því ný leið hefur bæst við í Búahömrum.
Hún skartar 6 eðal boltum og deilir auk þess toppakkeri með Gandreiðinni (5.10a), í Nálarveggnum fyrir miðjum hömrunum ofanverðum.

Sjá leiðarlýsingu í eldri pistli hér.
Nálarveggurinn er ca. 300-500m vestan við gilið hjá Svarta Turninum. Gengið inn að ofan... :) (sigið niður á stóra syllu undir leiðunum)
Við hlóðum litla hvíta vörðu á brúninni fyrr í sumar og stungum krokkethliði með bleiku prússíkbandi ofan í hana. Það þarf samt að merkja þetta almennilega við tækifæri.

Leiðin fær nafnið Garún Garún og gráðast í fyrstu atrennu 5.11b!
FF: Ágúst 2011. Sigurður Tómas, Valdimar Björnsson og Róbert Halldórsson.
Er töluvert flóknari og erfiðari en Gollum (5.11a) en eitthvað léttari en t.d. Sinfónía (5.11c) og fær því þessa fallegu gráðu þar til annað kemur í ljós...
Mjög teknískt háklassa klifur í góðu bergi - þurftum að mylja og skrapa burt eitthvað af dóti en það var minniháttar.
PS ekki láta ykkur bregða þó þið farið hana ekki beint af augum (onsight), því hún er töluvert snúin...

Tvöföld ástæða til að fara upp að Gandreiðinni ef menn telja varla ómarksins vert að elta uppi bara eina snilldarleið.

Myndir komnar á picasaweb.google.com/hraundrangi (Sædís myndasmiður að flestum myndunum)

Re: Gullmoli fundinn í Búahömrum 12 sep 2011 16:50 #12137

Skrifað 12 sep 2011 16:50
Flottir, gaman að það er að bætast við í Búahömrum, það er ágætis potential þarna og stutt að fara.

Re: Gullmoli fundinn í Búahömrum 15 sep 2011 11:17 #12142

Skrifað 15 sep 2011 11:17
Glæsilegt hjá ykkur.

Kveðja,
AB
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.19 sek