Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Saurgat Satans

Saurgat Satans 14 júl 2011 10:33 #12046

Skrifað 14 júl 2011 10:33
Á sunnudaginn síðasta fórum við, undirritaður, Ívar Hardcore, Bjöggi Árni og Gísli, í tveimur teymum leiðina Saurgat Satans í Vestrahorni. Þetta er snildar leið sem bíður upp á mjög skemtilegt fjölspanna klifur í einstöku umhverfi.

Klifrið sjálft tók um 4 tíma en þetta eru 7 spannir sem síðan er hægt að síga í 3 sigum.
Eitthvað hefur umræðan verið að boltun væri ekki nógu góð og löng run out. Því er ég ekki sammála því almennt er leiðin vel boltuð og með góðum stönsum og "passlegum run outum". Hardcore getur kannski kommentað á þetta :-)
Kletturinn er fínn en eins og við er að búast í svona leið er svoldið af skófum á slöbbunum.

Hvet alla til að láta vaða og skella sér austur í Vestrahorn.

En Hrappur og félagar hafa unnið gott verk þarna.

myndir á leiðinni frá mér og vonandi hinum líka.

Guðjón

Re: Saurgat Satans 14 júl 2011 11:26 #12048

Skrifað 14 júl 2011 11:26
Skemmtilegt!

Sýnið endilega myndir af uppgöngunni og umhverfi.
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re: Saurgat Satans 14 júl 2011 12:58 #12050

Skrifað 14 júl 2011 12:58
Nokkrar myndir.
Úrvalið því miður ekki sem best. En það voru nokkrar myndavélar með í för þannig að það hljóta að koma einhverja snildar myndir frá öðrum :)

picasaweb.google.com/gudjons/SaurgatSatans?authuser=0&feat=direct

Re: Saurgat Satans 14 júl 2011 18:32 #12052

Skrifað 14 júl 2011 18:32
Það mætti setja einn bolta í byrjun þriðjuspannar (notuðum Friend þar) annars eru styttra á milli bolta en gengur og gerist hérna í Evrópu í sambærilegum leiðum, þar sem 5 metrar er með því stysta.
Gráður í fjölspannaklifri eru blekjandi og þumalputtareglan sú að menn geti klifrað talsvert erfiðara en upp er gefið eða hafi þeim mun meiri reynslu í klifri.

Annars má hafa í huga að við Rafn þurftum fyrst að klifra upp Ódyseif með bensín-borvél, boltana,keðjur, fullann klifurrakk og 3 línur, Þar er ekki óalgengt að 2-3 boltar séu í spönn þannig eithvað gæti það haft með boltun Saurgatsins að gera. ;)

Re: Saurgat Satans 03 sep 2011 23:36 #12124

Skrifað 03 sep 2011 23:36
Já þetta var góður dagur og flott leið. Hér eru loksins nokkrar myndir frá mér...

Saurgat Satans - 10.07.2011

Re: Saurgat Satans 04 sep 2011 17:08 #12125

Skrifað 04 sep 2011 17:08
Frábær dagur og frábær leið. Þetta er leið sem er hiklaust hægt að mæla með. Varðandi rönnátin þá finnst mér þau bara gefa þessu karakter og góð hvatning til að klifra alveg pottþétt vel alla leið.

Re: Saurgat Satans 04 sep 2011 20:10 #12126

Skrifað 04 sep 2011 20:10
Takk fyrir að deila þessu Bjöggi, súper myndir að vanda og mjög skemmtilegt. Kannski verður maður einhvern tíman stór og spólar í þetta, hrikalega flott leið.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.32 sek