Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Hvað er versta klifurráð sem þið hafið fengið?

Hvað er versta klifurráð sem þið hafið fengið? 20 jún 2011 22:52 #11955

Skrifað 20 jún 2011 22:52
Ég rakst á þennan drepfyndna þráð hjá Alpinist með verstu klifurráðum sem menn hafa heyrt.

Þeir eru t.d. með:
Beginner: "I'm new to climbing, how thick of a rope do I need?"
Clerk: "You need at least a 10.5mm."
Beginner: "Why not one of these 9.8s?"
Clerk: "Because anything smaller than 10.5mm will break.")

Nokkrir hlutir koma til hugar, sumir eru nú reyndar bara helvíti góð ráð en kannski ekki þegar maður hangir á einhverjum crimper og veit ekkert hvað maður á að gera.

"Klifraðu hratt svo þú verðir ekki þreyttur"
"Hækkaðu lappirnar"
"Ég þarf ekki hjálm, ég er með þykka húfu"
"Passaðu að gránda ekki"

Nú þið.

isalp_cartoon.jpg

Re: Hvað er versta klifurráð sem þið hafið fengið? 20 jún 2011 23:08 #11957

Skrifað 20 jún 2011 23:08
hehe kíkti nú við í Raufarhólshelli á laugardaginn og þar stendur á upplýsingaskilti um öryggi áður en haldið er inní hellinn "Verið með hjálm eða þykka húfu" !

Re: Hvað er versta klifurráð sem þið hafið fengið? 21 jún 2011 12:40 #11960

Skrifað 21 jún 2011 12:40
Í sportklifurtúr í heitari löndum heyrðist eitt sinn eitthvað í þessa veruna:
Q: "Ég kemst ekki hærra og finn engin grip, hvað á ég að gera?"
A: "Bara UPP!"

Re: Hvað er versta klifurráð sem þið hafið fengið? 21 jún 2011 18:03 #11961

Skrifað 21 jún 2011 18:03
Tengt þessu:

Í kjölfar banaslyss, þegar íshellir hrundi í Hrafntinnuskeri 2006, var sett upp skilti við íshelli í Sólheimajökli. Skiltið sem var neon gult, virkaði eins og mykjuskán á mýflugur og dró alla gesti svæðisins að sér. Ekki nóg með það heldur æddu heilu rútufarmarnir þarna inn og létu mynda sig. Kannski ekki að furða enda stóð á skiltinu :

“ Beware of falling ice“.

Útlendingarnir skildu þetta eðlilega sem svo að óhætt væri að vera þarna inni. Fólk ætti bara að hafa augun hjá sér og hlaupa út ef eitthvað byrjaði að hrynja. Verst hvað þetta gerist hratt í raunveruleikanum.

Kv. Árni Alf.

Re: Hvað er versta klifurráð sem þið hafið fengið? 21 jún 2011 19:13 #11962

Skrifað 21 jún 2011 19:13
Versta ráð sem ég hef fengið: „Kauptu alltaf minnstu klifurtúttur sem þú getur mögulega troðið þér ofan í. Það er nauðsynlegt svo þú getir notað allra minnstu fótstigin.“

Ég tók þessu sem heilögum sannleik. Ég man eftir að hafa setið fyrir framan sjónvarpið, vælandi, í örvæntingarfullri tilraun til að víkka út Boreal nr 37,5. Þá blóðgaði ég mig nánast í ónefndri útivistarverslun þegar ég reyndi að komast í túttur nr 37 — það hefði verið mikil sigur hefði það tekist. Ég nota venjulega skó nr 42.

Ég gleymdi að taka með í reikninginn að engar klifurleiðir sem ég myndi nokkurn tíma klifra væru með svo agnarsmá fótstig að þessar fótapyndingar myndu gera gæfumuninn.

AB

Re: Hvað er versta klifurráð sem þið hafið fengið? 21 jún 2011 20:40 #11963

Skrifað 21 jún 2011 20:40
Klassísk þessi tútturáð.
Mér finnst eins og annar hver klifurtúttueigandi hafi byrjað ferilinn á að kaupa allt þær í allt of litlu númeri.

Stelpa, byrjandi í klifri: Ég kemst ekki lengra. Get ekki...
Gaur á jafnsléttu: Hífðu þig bara upp!

Re: Hvað er versta klifurráð sem þið hafið fengið? 22 jún 2011 10:02 #11964

Skrifað 22 jún 2011 10:02
Þessu tengt: Ég var einu sinni fyrir margt löngu í Stardal og mætti þar þremur piltum í klifurhugleiðingum. Þeir voru með eftirfarandi útbúnað: Línu, eitt belti, tvo langa slinga, tvær karabínur og stóran skiptilykil. Skiptilykillin átti, að ég held, að notast sem trygging. Veit ekki hver ráðlagði þeim...

Re: Hvað er versta klifurráð sem þið hafið fengið? 25 jún 2011 20:57 #11978

Skrifað 25 jún 2011 20:57
Í gamla daga notuðu menn víst rær með bandi sem hnetur. Þá lægi beinast við að hafa með sér skiptilykil fyrir það verkfæri sem hnetulykill er nú til dags....

Re: Hvað er versta klifurráð sem þið hafið fengið? 27 jún 2011 18:35 #11990

Skrifað 27 jún 2011 18:35
Jósef Sigurðsson í Vatnsdalnum fyrr í sumar að leiðbeina e-m í miðri leið hvar næsta grip væri:

"Já til vinstri, þarna, nei lengra, já einmitt, þarna. Þarna er EKKERT!"
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.37 sek