Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Slys í Valshamri

Slys í Valshamri 30 maí 2011 20:38 #11895

Skrifað 30 maí 2011 20:38
Vill bara benda á grein sem hann Þórður Sævarsson sendi okkur af slysi sem gerðist í gær í Valshamri.

Góð áminning fyrir alla að fara varlega. Systir hans er ótrúlega heppin að ekki fór verr.

Kv Dóri

Re: Slys í Valshamri 30 maí 2011 21:28 #11896

Skrifað 30 maí 2011 21:28
Hvar er greinin?

Re: Slys í Valshamri 30 maí 2011 21:38 #11897

Skrifað 30 maí 2011 21:38


Ég er næstum orðlaus.

Ég get bara verið vitur eftir á og hefði auðvitað átt að setja læsta karabínu í akkerið...
No shit

Klifur er alla jafna ekki sérstaklega hættulegt ef rétt er farið að, sérstaklega í Valshamri þar sem flestar leiðir eru vel boltaðar og akkeri góð. Þeir sem ætla að leiðbeina öðrum verða að kunna vel til verka. Þið systkinin hefðuð líklega haft gott af því að slást í för með ÍSALP þennan dag, frekar en að prófa ykkur áfram sjálf. Ég gæti verið mun harðorðaðri en læt þetta nægja. Að því sögðu er ég mjög feginn að ekki fór verr. Vonandi jafnar systir þín sig, og þú sjálfur.

Skabbi

Re: Slys í Valshamri 31 maí 2011 00:26 #11898

Skrifað 31 maí 2011 00:26
Ágúst Kristján Steinarrsson wrote:
Hvar er greinin?
Efst undir "Greinar" (eða http://isalp.net/greinar/7-olaestar-greinar/1108-slys-i-valshamri.html).

Gott að ekki fór verr!

Re: Slys í Valshamri 31 maí 2011 10:04 #11899

Skrifað 31 maí 2011 10:04
Mikil mildi að ekki fór verr. Ég var einn þeirra sem mætti ykkur þennan dag og átti erfitt með að skilja hvað hafði eiginlega gerst.

Takk fyrir að útskýra þetta aðeins og deila með okkur. Það er mikilvægt að svona mál fái að koma fram í dagsljósið.

Re: Slys í Valshamri 31 maí 2011 10:17 #11900

Skrifað 31 maí 2011 10:17
Sammála seinasta ræðumanni. Vill benda á að Þórður sendi okkur greinina að okkar beiðni. Þótt að klifur sé alla jafna ekki hættulegt. Þá þurfum við að læra af slysum sem þessum og þetta er góð áminning fyrir alla.

Kv Dóri

Re: Slys í Valshamri 31 maí 2011 10:43 #11901

Skrifað 31 maí 2011 10:43


Ég tek undir med oðrum ad thad er mildi ad ekki for verr. Ennfremur tha er Thordur madur meiri fyrir ad hafa tekid saman pistil um atvikid sem getur verid okkur hinum lexia. Takk fyrir thad Thordur.

Eg hef sjalfur gerst sekur um heimskupor a fjollum sem eg hef deilt med odrum a thessum vettvangi, odrum viti til vardnadar.

Lifir sem laerir

Kvedja
Halli

Re: Slys í Valshamri 31 maí 2011 13:27 #11902

Skrifað 31 maí 2011 13:27
Gott að ekki fór verr og ég tek ofanaf fyrir ykkur að segja bara vel frá því annara til áminningar.
Það eru til margar misgáfulegar sögur af svaðilförum sem aldrei hafa verið opinberaðar vegna hræðslu við gagnrýni og ég er alltaf ánægður með þegar menn segja bara rétt frá því sem fór úrskeiðis sjálfum sér og annara til áminningar og ýtrekunar að fara varlega.

Gangi ykkur vel og endilega farið sem fyrst að klifra aftur til að losna við "skrekkinn". Það hægði mikið á mér þegar ég tók leiðsluflugið í glymsgili hér um árið en það bjargaði miklu að ég fór fljótlega aftur að klifra.
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Slys í Valshamri 31 maí 2011 13:54 #11903

Skrifað 31 maí 2011 13:54
Tek undir með Halla, Dóra og fleirum hérna.

Vil líka hvetja byrjendur til að fara á námskeið á vegum klifurhússins eða ÍSALP í stað þess að vera að bauka eitthvað sjálfir.

Við Skabbi fórum á svona námskeið hjá Stebba Smára í lok síðustu aldar og kennslan þar var mjög góð undirstaða, örugglega búið að bjarga rassgatinu á manni oft.

Climb safe.

Sissi

Re: Slys í Valshamri 01 jún 2011 19:06 #11905

Skrifað 01 jún 2011 19:06
Þetta er sláandi lesning Þórður sem ég vil þakka þér fyrir að deila með ÍSALP. Vona sannarlega að systir þín nái sér fljótt og að óhappið leggist ekki þungt á ykkur.
Ég hef löngum verið þeirrar skoðunar að sigið sé það hættulegasta sem við gerum í þessu brölti. Reyndar skil ég ekki alveg aðra málsgrein og spurningar vakna? Kom línan öll niður? Var/er karabínan uppi í akkerinu heil og á sínum stað? Hvernig var línan í túbunni?

Án þess að þekkja málavöxtu nákvæmlega er tvennt sem slær mig. Þú bendir sjálfur á að hafa læsta karabínu á sigakkerinu uppi en hitt er að fylgjast með hverri hreyfingu byrjenda og treysta þeim ekki. Þá ættu byrjendur einnig að nota prússikhnút við sig til að temja sér góða siði strax frá upphafi.

Þótt slysin geri ekki boð á undan sér er ýmislegt hægt að gera til að forðast þau. Vissulega má sterklega mæla með námskeiðum ÍSALP og Íslenskra Fjallaleiðsögumanna eða Klifurhússins en samt sem áður er það eitt og sér ekki nóg því margt af því sem maður lærir ryðgar fljótt ef það er ekki notað reglulega.
Þakka þér enn og aftur fyrir að deila þessu... þú ert maður að meiri fyrir vikið.
Sjáumst á fjöllum / í klettum.
kv, Jón Gauti
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.40 sek