Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Laus steinn í Eilífi

Laus steinn í Eilífi 26 maí 2011 00:05 #11876

Skrifað 26 maí 2011 00:05
Ég og nokkrir aðrir vorum á ferð í Valshamri í dag. Í Eilífi var stór laus steinn vinstra megin við 5. bolta. Við sigum aftur niður að honum eftir að klára leiðina og skoðuðum betur, hann var það þungur að við ákváðum að velta honum ekki, en hins vegar nógu laus til þess að hann gæti valdið hættu áður en langt um líður. Spurning um að menn kíki á þetta á laugardaginn. Ég held að það "skemmi" leiðina ekki ef honum væri velt, en líklega væri betra að fá álit annarra.

Re: Laus steinn í Eilífi 26 maí 2011 14:48 #11881

Skrifað 26 maí 2011 14:48
Ef þú ert að tala um flöguna sem er búin að lúkka svolítið laus í áraraðir myndi ég nú ekki hrófla við henni án þess að láta einhvern með tilskilin réttindi (menn á borð við STÞ eða Stefán Steinar) taka út hvort það hefur orðið einhver breyting til hins verra.

Þetta er náttúrulega úber klassík leið og það er ákveðin hætta á að þú yrðir barinn í harðfisk ef þú gerðir einhverjar óvinsælar breytingar :)

Góð ákvörðun að geyma þetta, en spurning um að menn fari þá varlega þar til það er kominn dómur í málinu.

Sissi

Re: Laus steinn í Eilífi 02 jún 2011 00:11 #11906

Skrifað 02 jún 2011 00:11
Hmmm, erum við að tala um eitthvað dót inni í sprungunni vinstra megin við standard klifurlínuna?
Get varla ímyndað mér að það sé eitthvað sem menn taka venjulega í en óneitanlega drifta margir þarna yfir ef þeir lenda í vandræðum með efra krúxið. Maður þarf greinilega að hafa augun hjá sér í næsta túr í V.
Klárlega að henda þessu niður frekar en að fá þetta í toppstykkið á einhverjum (fór nærri illa í Pöstunum um daginn) nema þetta sé algjört lykilgrip og þá þarf að skoða að líma þetta.
Annars er ég svo ungur í þessu að ég var enn með bleyju þegar gömlu refirnir voru farnir að brölta þarna svo ég hef engan atkvæðisrétt í þessu.. :)

Re: Laus steinn í Eilífi 02 jún 2011 01:53 #11907

Skrifað 02 jún 2011 01:53
Ég skildi Árna þannig að þetta væri stóra flagan þegar maður kemur upp úr krúxinu, vinstra megin.

Re: Laus steinn í Eilífi 19 jún 2011 23:35 #11951

Skrifað 19 jún 2011 23:35
Meira um Eilíf - það er einhver smáfuglinn búinn að búa sér heimili í sprungunni við fyrsta bolta í Eilífi. Manni getur brugðið hressilega þegar hann kemur þarna askvaðandi út og einnig er rétt að fara gætilega þarna svo allir íbúar sleppi heilu og höldnu frá stálgripi klifrara (ætti ekki að vera problem samt, öllu verra að bregða og detta úr fyrsta bolta)

Re: Laus steinn í Eilífi 27 jún 2011 13:43 #11983

Skrifað 27 jún 2011 13:43
Enn meira um Valshamar, menn hafa tekið sig til og lagað slóðann að bílastæði klifrara, hann er enn ansi bömpí en stórt grjót hefur verið fjarlægt. Svo nú ætti þetta að vera auðveldlega Yaris-fært.

Sissi

Re: Laus steinn í Eilífi 27 jún 2011 17:31 #11988

Skrifað 27 jún 2011 17:31
Það er nú staðfest að Maríuerla hefur gert sér hreiður efst í sprungunni sem er í byrjun Eilífs. Skabbi sagðist hafa séð að minnsta kosti eitt egg. Fuglgreyið var fljúgandi í kring í allan gærdag og nýtti tækifærið um leið og klifrarar færðu sig fjær, til þess að athuga með eggin sín.

Re: Laus steinn í Eilífi 27 jún 2011 18:38 #11991

Skrifað 27 jún 2011 18:38
Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir wrote:
Það er nú staðfest að Maríuerla hefur gert sér hreiður efst í sprungunni sem er í byrjun Eilífs.


Já, og Maríuerla hefur einnig gert sér hreiður í veggnum fyrir utan Tóftina á Hnappavöllum. Kemur þessum þræði eiginlega ekkert við en þetta er hundraðasti þráðurinn minn þannig að ég ákvað að láta vaða!

Húrra fyrir mér.

Re: Laus steinn í Eilífi 29 jún 2011 13:14 #12000

Skrifað 29 jún 2011 13:14
Er ekki málið að losa okkur við þennan stein áður en næsti þráður verði um slys í Valshamri útaf lausum stein?



Það getur ekki verið svo heilagt að halda í gamlar leiðir að við þurfum að hafa þær hættulegar?

kv.Himmi

Re: Laus steinn í Eilífi 30 jún 2011 00:31 #12002

Skrifað 30 jún 2011 00:31
Smá meiri slóðaumræða.

Ég fór upp í Valshamar í dag, þar var bóndinn á svæðinu að vinna í slóðanum inn að ÍSALP stæðinu. Hann stoppaði mig og sagðist vera laga veginn fyrir okkar og spurði í leiðinni hvort við þyrftum stærra bílastæði. Ég sagði að það þyrfti nú ekki að vera neitt mikið stærra þó smá stækkun væri kannski fín, en aðallega það að fólksbílar gætu lagt í öll stæðin, ekki eins og þetta er nú þar sem fólksbílar geta í raun bara notað svona tvö stæði. (Ég sá 1x síðasta sumar að bíll þurfti að vera lagður fyrir utan girðingu sökum plássleysis).

Annars er bóndinn nú búinn að keyra fullt af efni í veginn og var að reyna vinna og gera þetta gott.

Hann vildi bara að ég kæmi þessum skilaboðum til stjórnar og sagði að það þyrftu kannski nokkrir að rölta allan veginn og grjóthreinsa þetta lausa sem verður eftir ofaná en miðað við það efni sem hann var að setja í veginn þegar ég keyrði hann þá ætti það nú ekki að vera mikið. Annars þakkaði ég honum bara kærlega fyrir hans vinnu.

Re: Laus steinn í Eilífi 01 júl 2011 00:14 #12006

Skrifað 01 júl 2011 00:14
Sweet! Í kvöld voru einmitt fjórir fólksbílar inni í girðingu og einn yfir utan. Einnig höfðu einhverjir lagt hjá sumarbústöðum þar sem þeir höfðu einhver tengsl. Sumsé fullt af fólki í Valshamri í kvöld og þ.a.l. slatti af bílum. Þökk sé bóndanum og hans vinnu komust allir þessir fólksbílar léttilega inn eftir á fína veginum.

Re: Laus steinn í Eilífi 06 júl 2011 10:13 #12016

Skrifað 06 júl 2011 10:13
Í nælonblíðu í Valshamri í gærkvöldi voru 5 bílar og einn af þeim fyrir utan bílastæðið. Held að það megi alveg stækka það ef allir eru sáttir. Sá bóndann taka eina umferð á gröfunni og slétta slóðann í gær. Hann á skilið hrós og klapp á bakið. Mér finnst að stjórn Ísalp ætti að koma á framfæri þökkum til hans, ef það er ekki þegar búið. Varðandi lausar flögur og grjót þá er vissulega eitthvað af því í hamrinum. Ég skil vel þá afstöðu að vera ekki að breyta leiðum sem fólk hefur klifrað frá blautu barnsbeini. En væntanlega eru allir sammála um að setja öryggi ofar öllu. Er ekki bara mál að láta nokkra reynslubolta kíkja á þetta og taka ákvörðun. Svo ætla ég að reyna að muna eftir skiptilykli til að hækka skiltið okkar aðeins á staurnum við afleggjarann í næstu ferð. Skora á einhvern að verða fyrri til.

PS. frú María Eilífsdóttir var ansi spök þrátt fyrir klifurtraffík og talsvert tíst barst úr sprungunni.
\"There are only 3 real sports: bull-fighting, car racing and mountain climbing. All the others are mere games.\"

-Hemingway

Re: Laus steinn í Eilífi 07 júl 2011 09:51 #12018

Skrifað 07 júl 2011 09:51


Bóndinn á Meðalfelli, mig minnir að hann heiti Sigurþór, hefur ævinlega verið vinveittur okkur klifrurum og á allar þakkir skildar fyrir að laga veginn.

Varðandi skiltið við afleggjarann þá hafa hestarnir nýtt sér það sem klóruprik þegar skiltið er hærra á staurnum. Sjálfur hef ég alloft hækkað það á staurnum en það er ævinlega orðið loðið af skít niðri við jörð aftur skömmu síðar.

Allez!
Skabbi

Re: Laus steinn í Eilífi 08 júl 2011 09:44 #12020

Skrifað 08 júl 2011 09:44

heimsótti loksins Valshamar í gær.

Tók eftir því að hestarnir eru farnir að nota plastgirðingastaurana í kringum bílastæðið sem klóruprik fyrir góminn í sér. Einn var síðan að japla á bandinu!

Þær hættu sér nú samt ekki inn fyrir girðinguna!

Einn klifrari lenti í því óhappi að tjóna bílinn sinn inneftir, steinn skemmdi olípönnu og þurfti að fá dráttarbíl til að sækja bílinn. Þannig að þið sem eruð á lágum bílum farið varlega.

Annars var rjómablíða uppí Valshamri í gær, hægt að klifra í hotpants og ermalausum bol til allaveg kl. 22 þegar við yfirgáfum svæðið :)
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.45 sek