Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Verðlauna fjallastemmning

Verðlauna fjallastemmning 21 apr 2011 19:45 #11750

Skrifað 21 apr 2011 19:45
Ef þið hafið fylgst með Piolet d'Or verðlaununum í ár, þá er víst að Grænlandsferð Favresse bræðra, Sean Villanueva og Ben Ditto hefur ekki farið farm hjá neinum. Þeir unnu eitt stykki gullexi fyrir leiðangur sem kæmist venjulega ekki á blað hjá frönsku spekúlöntunum. Andinn sem sveif yfir þessari ferð heillaði þó dómnefndina upp úr skónum og svo fór sem fór.

Í stuttu máli sagt var þetta nokkurra vikna ferð milli hárra kletta víðsvegar um Grænland. Farkosturinn var skúta með 75 ára gömlum presti sem kafteín.

Þetta er verkefni sem ætti að vera innan seilingar fyrir Íslendinga. Vel sjóuð áhöfn og skúta á Vestfjörðum líklega klár í slaginn.

Mæli hiklaust með því að horfa á þessa fimm þætti sem þeir settu saman um leiðangurinn á Alpinist.com. Skemmtilegustu fjallamyndbönd sem ég hef séð lengi.

Re: Verðlauna fjallastemmning 25 apr 2011 15:44 #11762

Skrifað 25 apr 2011 15:44
Ég á sett af camelottum og einhverju fleiru, kreditkort, eitthvað af frítíma og fljótlega 3 mánaða feðraorlof......ef þú reddar skútu þá er ég game!

Himmi

Re: Verðlauna fjallastemmning 25 apr 2011 22:54 #11766

Skrifað 25 apr 2011 22:54
Skúta: CHECK!
Rúnar Karlsson
href='www.BoreaAdventures.com/' :: href='www.NorthExplorers.is/'
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.42 sek