Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Umræður um kletta, háa jafnt sem lága, innanhús sem utan.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: El Chorro

El Chorro 28 jan 2011 12:56 #11296

Skrifað 28 jan 2011 12:56
Já, er ekki bara "stíglingur konungsins" (El Caminito del Rey) ekki bara kominn í heimspressuna...
www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/thetta-er-haettulegasta-gonguleid-i-heimi-alls-ekki-fyrir-lofthraedda---myndband

Allir sem hafa komið til El Chorro hafa væntanlega farið stíginn en hann er afar hressandi. Það eru nú via ferrata vírar nánast alla leið þennig að þetta er ekki neinn dauðastígur eins og þetta er lagt upp í fréttinni, alla vega ekki ef menn kunna á spotta og karabínur.

Re: El Chorro 28 jan 2011 13:25 #11297

Skrifað 28 jan 2011 13:25
Hann virtist heldur ekki mikið lokaður hérna um árið, nema þá að allra fyrsti parturinn var eiginlega ekki til staðar. Spurning hvort hann hafi verið fjarlægður. En það gerir þetta bara meira spennandi.

Re: El Chorro 29 jan 2011 20:46 #11300

Skrifað 29 jan 2011 20:46
Ég var einmitt þarna ásamt Andra, Jonna, Kristó, Lóu, Örvari og Hróðmari um jólin og við röltum stíginn annan dag jóla. Þar sem þetta var í fyrsta skipti sem ég kem til El Chorro veit ég ekki hvernig aðgengið að stígnum var áður en það er ekkert sérlega gott núna, svona ef miðað er við venjulegt fólk (auðvitað ekkert mál fyrir klifrara). Til þess að komast á hann núna þarf að hliðra sér yfir gömul járn sem standa út úr veggnum með 2-3m millibili og svo tekur við stutt via ferrata brölt (sem mér sýndist klippt úr vídjóinu á Pressunni). Ég var búinn að horfa á einnhver myndbönd af þessu áður en ég fór út og verð að segja að mér fannst þetta líta talsvert verr út í myndböndum heldur en þegar maður var á staðnum sjálfur. Kannski var maður bara of upptekinn af umhverfinu, gilið er klikkað flott.
Svo er gaman að geta þess að eftir fyrsta gilið er dalur en hinum megin í dalnum (lengra en Makinodromo, um 15-20 mín labb) er annað gil þar sem stígurinn heldur áfram, sá hluti er greinilega ekki jafn oft farinn, sem sást m.a. af því að þar var ekki stálvír meðfram nema þar sem allt var hrunið. Mér sýnist seinustu tvær mínúturnar af vídjóinu á Pressunni vera þaðan.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.19 sek